Hítará - 10 bestu staðirnir

Tíu aflahæstu veiðistaðir Hítarár sumarið 2025
Eftir Harald Eiríksson
Veiðin í Hítarásumarið 2025 var með ágætum og veiddust tæplega 500 laxar.
Útkoman er athygliverð fyrir þær sakir að áin hefur fengið sinn skerf af mótlæti því sumarið 2018 varð berghlaup úr Fagraskógarfjalli sem breytti farvegi árinnar og myndaði stórt lón í miðjum Hítardal sem fengið hefur nafnið Bakkavatn. Þangað er ekki fiskgengt því foss í nýjum farvegi Hítarár útilokar lax frá því svæði árinnar sem áður var kennt við Hítará II. Þess í stað gengur hann upp að umræddum fossi á móts við skriðuendann.
Að auki hefur eiginlegri fiskirækt verið hætt og seiðasleppingar á vatnasvæðinu heyra sögunni til. Hítará og hliðarár hennar eru því að öllu leiti sjálfbærar, en lögð hefur verið áhersla á góða umgengni, sleppingum á veiddum laxi og færslu laxapara á ófiskgeng svæði til hrygningar. Með þessum aðgerðum sér áin nú um sína laxaframleiðslu með sjálfbærum hætti.
Merkjanlegar breytingar eru veiðinni í Hítará eftir hamfarirnar í Fagraskógarfjalli. Veiðin í neðanverðri ánni hefur aukist til mikilla muna en fjórir af bestu veiðistöðunum í fyrra eru á neðsta hluta árinnar. Virðist sem hrygningarskilyrði laxa í neðanverðri ánni hafi batnað til mikilla muna eftir tilkomu Bakkavatns og gæti vatnshiti spilað þar inn í. Slíkt eru þó aðeins getgátur og frekari rannsókna þörf.
En hefjum yfirreið yfir aflahæstu veiðistaðina sumarið 2025. Við byrjum á þeim aflahæsta og vinnum okkur niður í réttri röð.

Langidráttur
Þessi magnaði veiðistaður er sem oft áður aflahæstur. Staðurinn er mikil laxakista, en ekki endilega góður hrygningastaður. Ein af ástæðum þess að þar safnast saman mikið af laxi er sú að hér bíður laxinn uns skilyrði til uppgöngu í Melsá, hliðará Hítarár, eru honum hagfelld. Þetta er langur og fjölbreyttur veiðistaður en mismunandi er eftir vatnsstöðu hvar laxinn liggur. Í litlu vatni kýs hann ólgurnar efst í staðnum, en ef vatnsstaða er góð má finna lax um allan hylinnog besti tökustaðurinn neðan til.
Norðmannshaugur
Þessi veiðistaðurer á neðsta hluta árinnar. Hann er sterkur göngustaður en síðustu ár hefur lax legið þar allt tímabilið. Þarna rennur áin í skeifu og skellur á grasbakka að sunnanverðu við vegamótin að Kotdalsfljóti og þarf að vaða yfir ána ofan við hylinn til veiða. Lax má finna í harða strengnum og langt niður á breiðuna eftir á áin tekur krappa beygju. Þarna má gjarnan finna sjóbleikju og sjóbirting að auki.
Sveljandi
Er niður undan bæjarstæðinu á Lækjarbug á neðsta veiðisvæðinu. Þessi veiðistaður fannst fyrir um 20 árum þegar félagarnir Daníel Guðlaugsson og Hilmar Jónsson álpuðust þangað síðsumars. Fengu þeir stórveiði og alla tíð síðan hefur hann verið einn af lykilstöðum árinnar. Skammt ofan hans fellur Fiskilækur í Hítará, en þar eru hrygningar- og uppvaxtarskilyrði einna best á vatnasvæðinu. Um er að ræða stóran veiðistað með háum grasbakka í suðurbakkanum, en Sveljandi er veiddur að norðanverðu. Því þarf að fara yfir á vaði ofan hans. Mismunandi er á milli ára hvar lax liggur á breiðunni. Alla jafna er hún þó sterkust frá miðbiki hylsins og niður á brot. Í Sveljanda er gjarnan mikið af sjóbirtingi sem bíður uppgöngu í Fiskilæk en til þess þarf mikla vatnavexti.
Breiðin
Er einn kunnastiveiðistaður Hítarár og blasir við úr stofuglugganum í Lundi. Í gegnum áratugina hafa Breiðin og Kverkin gjarnan verið aflahæstu staðir árinnar, en sjáanleg breyting er nú á heimahyljunum eftir að gamla þjóðvegsbrúin var fjarlægð. Við það breyttist Brúarfoss og er hann nú engin hindrun fyrir lax. Sést það best á að nú er Kverkin ekki lengur á meðal aflahæstu veiðistaða árinnar, eitthvað sem hefur ekki sést áratugum saman. Breiðin er í raun gjá sem opnast úr Húshylnumog er ógnardjúp. Neðst í henni grynnist gjáin og þar eru hvítar líparítskellur sem laxinn liggur á. Breiðin gefur best þegar að lax er í göngu.

Úrhylur
Er efsti eiginlegi veiðistaðurinn á aðalsvæði árinnar. Þegar sumri tekur að halla safnast mikið af laxi í Úrhyl, en hann er þó að finna frá fyrsta veiðidegi og gefur hann jafnvel veiði í opunun árinnar. Skammt ofan Úrhyls fellur Grjótá til Hítarár og líkur eru á því að í Úrhyl doki við lax sem á erindi þangað. Þarna eru gjarnan stórir fiskar. Veiðimenn þurfa að varast að ana fram á bakkann að sunnanverðu, þess í stað taka sveig, og ganga upp fyrir veiðistaðinn. Best er að hefja köstin vel ofan við þrenginguna og smokra sér varlega niður hylinn. Bestu legustaðirnir eru þó með fjærlandinu og því getur þurft góð köst í Úrhyl.
Flesjufljót
Stórkostlegur veiðistaður er Flesjufljót á neðsta svæðinu, langt fljót sem breiðir úr sér niður á hægara vatn. Fyrir nokkrum árum var komið upp steinaröð frá suðurlandinu. Við það þrengdist efri hluti hylsins og jókst veiðin verulega. Umrædd steinaröð myndar stút efst í staðnum sem veiða má af báðum bökkum. Þarna er venjulega mest af laxinum, en ef vatnsstaða er góð má fá þar hann niður alla breiðuna. Að auki er talsvert af sjóbirtingi í fljótinu.
Grettisstillur
Annálaður stórlaxastaður skammt ofan við þjóðvegsbrúna.
Stillurnar eru í raun margir veiðistaðir, og breytast þeir mjög eftir vatnsmagni. Þegar að vatn er lítið leynist fiskur um allar stillurnar, en há vatnsstaða hentar þessum veiðistað frekar illa. Þá er laxinn helst að finna á breiðunni út af stóru bjargi neðst í Grettisstillum og jafnvel í rásunum neðan við þær. Venjulega er veiðistaðurinn veiddur af norðurbakkanum, en það er þó háð vatnsmagni.
Ármót
Hér eru gömluármót Hítarár og Tálma. Staðurinn er rétt ofan við Langadrátt og eflaust einnig geymslustaður fyrir Melsárfiskinn.
Þetta er fallegur veiðistaður og hér fer flugan vel. Hægt er að veiða hann frá báðum bökkum, þó betra sé að standa við veiðarnar að sunnaverðu. Sé veitt af norðurbakkanum er staðið á grasbakka og mun auðveldara að styggja laxinn sem liggur bak við stór grjót í botninum fyrir miðjum hyl.
Festarfjót
Enn einn veiðistaðurinn á neðsta hluta Hítarár, staðsettur á melnum á milli bæjanna Lækjarbugs og Brúarfoss. Hann er auðvelt að finna því rafmagnslínan vestur á Nes liggur yfir veiðistaðinn. Þetta er hraður strengur sem skellur á klöpp bílmegin og breiðir úr sér í laglegan hyl. Staðinn má veiða frá báðum bökkum og efst í honum liggur göngulaxinn. Þar sem um hægist má hins vegar finna lax allt sumarið, alveg niður í stórgrýtið á brotinu.

Rauðhóll
Er í Tálmanum, ofan við Skógargljúfur. Þarna hefur áinbreytt um svip, umhverfið kjarri vaxið og Hítará rennur um hraunið. Þetta er stórkostlegur veiðistaður, sem ber nafn sitt af Rauðum vikurhól í norðurbakkanum. Við fyrstu sýn virðist hylurinn ekki merkilegur en Rauðhóll leynir á sér því djúpar skellur eru við fjærbakkann og þar liggur laxinn. Þess á milli er veiðistaðurinn frekar grunnur og mjög hraður.
Eftirmáli
Látum við þar með lokið upptalningu á bestu veiðistöðum Hítarár sumarið 2025. Þess ber þó að geta að það er liðin tíð að megnið af sumarveiðinni komi úr fáum hyljum. Ef horft erframhjá Langadrætti sem á um 15% veiðinnar þá dreifist laxveiðin á mikinn fjölda hylja sem gefa 2-6% af laxveiði sumarsins. Kverk, Háibakki, Hólmi, Kotdalsfljót og Skógargljúfur gefa til dæmis vel á annan tug laxa en komast ekki inn á yfirlit tíu bestu veiðistaða. Mikil breyting er á gönguhegðun laxins í Hítará og staðir eins og Steinastrengur, Túnstrengir og Steinabrot ná ekki lengur inn á lista yfir bestu veiðistaði. Þó verður að telja líklegt að þar sem veiðin dreifist mun betur en áratugina á undan þá hafi viðvera veiðimanna á umræddum stöðum minnkað til mikilla muna þar sem nýjir og álitlegir veiðistaðir hafa myndast.


