Til baka

Ytri Rangá

Veiðistaðalýsing - Ytri Rangá

Höfundar Alexander Freyr Þórisson, PéturSteinar Jóhannsson og Trausti Arngrímsson.

Ytri-Rangá er ein áreiðanlegasta laxveiðiá landsins, með stöðugt vatnsmagn sem tryggir að hún verður aldrei óveiðanleg vegna flóða eða þurrkatíð. Hún er fullkomin til fluguveiða og þar má finna laxa í öllum stærðum, bolta urriða og sjóbirting. Áin er fjölbreytt með fossa, flúðir og breiður sem skapa einstakar veiðiaðstæður. Hún er ein af stærstu lindám landsins og rennur í gegnum bæinn Hellu, 96 km frá Reykjavík. Upptökin eru við Rangárbotna, þar sem gífurlegt vatn streymir upp úr jörðinni við Heklurætur. Ytri Rangá ber síðan nafnið Hólsá eftir að hún sameinast Þverá við veiðistaðinn Djúpós. 

Lengd laxasvæðisins er um 31 km, að Hólsárós. Algengt meðalrennsli hennar við Hellu er á bilinu 44 til 57 rúmmetrar á sekúndu. Á laxasvæðinu eru 68 merktir veiðistaðir og fjöldi annarra ómerktra. Samtals eru veiðisvæðin tíu talsins. Laxinn vill helst halda sig nær bakkanum en fjær og ef veiðimaður er óviss hvar fiskurinn liggur er best að taka stutt köst og lengja síðan í þegar kemur að öðru rennsli.

Hér að neðan koma lýsingar á helstu veiðistöðum Ytri Rangár frá þremur leiðsögumönnum sem þekkja ána eins og handarbakið á sér og þeir eru Alexander Freyr Þórisson, Pétur Steinar Jóhannsson og Trausti Arngrímsson.

Borg

Neðri og Efri Borg eru með fyrstu stöðum þar sem laxinn stoppar áður en hann heldur áfram upp. Á þessum tökustöðum finnst bæði lax og sjóbirtingur. Það er best að nota tvíhendu þar sem veiðistaðirnir eru við háan bakka og erfitt getur verið að kasta yfir höfuðið. Þetta eru ekki einungis göngustaðir heldur vill laxinn oft staldra lengur við þar sem skilyrðin eru hér tilvalin fyrir fiskinn. Efri Borg er ein samfelld læna þar sem stór torfhrúga er fyrir framan efra bílastæðið. Það brýtur á þessari hrúgu en hún stendur ekki upp úr ánni og helst er að finna lax í kringum hana, bæði fyrir ofan og neðan við hana. Neðri Borg byrjar við litla vík, sem er um 90 metrum fyrir neðan torfhrúguna en einnig er hægt að sjá þétta trjárunna uppi á bakkanum við þessa vík. Laxinn heldur sig frekar nálægt landi, en nokkrir tangar eru meðfram bakkanum þar sem laxinn stoppar iðulega. Best er að byrja með eina stöng um 50 metrum fyrir ofan torf hrúguna og hina 50 metrum fyrir neðan og veiða sig niður að svæðamörkum. Það er hægt að lenda í mokveiði á þessum stað sérstaklega þegar stóru göngurnar byrja og hér er mjög vinsælt að nota langann Sunray eða Bismo.

Straumey

Þetta er einn af þeim veiðstöðum sem getur leynt gríðarlega mikið á sér og vinsælt er að veiða Straumey í austanátt þar sem eyjan veitir veiðifólki skjól fyrir sterkum vindinum. Kvíslin er ekki djúp nema fyrir miðju, nálægt landi og þar vill laxinn stöðva. Hægt er að veiða þennan stað frá bakkanum eða frá eyjunni en langbest er að vaða út í eyjuna og kasta í átt að landi. Vaðið er ekki djúpt og auðvelt er að komast að eyjunni og best er að vaða yfir efst við eyjuna og standa ekki of langt frá henni þegar byrjað er að kasta. Hægt er að nota einhendur, switch og tvíhendur á þessum stað en flestir veiðimenn telja skemmtilegast að nota litlar tvíhendur eða switch-stangir. Veiðimenn skulu gæta þess að ganga ekki mikið á háa bakkanum við bílastæðið þar sem laxinn getur verið mjög styggur og mun ekki taka ef hann verður var við veiðimenn. Við mælum með því að nota litlar flugur í stærð 14 og rauður Francis eða Haugur gefa oft vel á þessum stað.

Fjarkastokkur

Fjarkastokkur er staðsettur um miðja Hólsá og er gríðarlega skemmtilegur veiðistaður. Þetta er breiða með jafnan straum og krefst þess að veiðimenn haldi flugunni á hreyfingu með því að menda upp og strippa ört eða menda niður ána og leyfa henni að reka hraðar yfir staðinn. Fiskur getur legið víða, en helst er að finna hann við fjóra steina sem eru í beinni röð skammt frá bakkanum, um 10 metra utar er einnig mjó læna. Þessi staður er gríðarlega skemmtilegur en krefst mikillar einbeitingar.

Djúpós

Djúpós stendur við Djúpósstíflu sem reist var árið 1923. Gríðarlegt magn af fiski gengur þarna í gegn og oft sér maður stórar göngur koma inn með loftköstum. Margir veiðimenn eiga í ástar-/haturssamband við þennan stað þar sem það er auðvelt að flækja línuna í gróðri og grjóti í bakkastinu. En ástæðan fyrir að veiðimenn koma alltaf aftur að staðnum er að það er alltaf möguleiki á að setja í fisk. Við veiðar í Djúpós er best að byrja við sleppitjörnina efst og gott er að vaða út í hnédýpi og taka síðan beinalínu að sjálfri stífluni. Þegar komið er þangað er farið upp á malar slóðan. Það er hægt að finna fisk alla leið niður að Djúpósnef en einn heitasti staðurinn í Djúpós er í kringum minnisvarðarnn sem stendur á bakkanum við miðja stíflu. Veiðimenn skulu reyna að forðast eins og hægt er að ganga ofan á stíflunni til að styggja ekki laxinn. Mikilvægt er að veiða alveg að bakkanum, láta línuna renna alveg að og hinkra í 2-3 sekúndur áður en farið er að huga að næsta kasti.

Hólmabreiða

Hólmabreiða á sterkar rætur í sögu Ytri Rangá. Þessi veiðstaður getur verið gríðarlega gjöfull ef hann er veiddur rétt. Laxin getur legið á nokkrum stöðum en helst er að finna hann á tveimur blettum. Rétt neðan við sleppitjörn og holunni sem er rétt ofan við hólma sem skiptir ánni í tvennt. Á milli þessa staða er einnig oft lax og neðan holunnar þannig það er gott að byrja efst og veiða sig niður og fara vel niður fyrir holuna. Laxinn liggur almennt nálægt landi, um 1-2 metra frá kanti sem er staðsettur ca 5 metra frá bakkanum. Það getur verið snúið að vaða yfir í hólmann þar sem kvíslin getur verið mjög djúp á köflum og við mælum með því að fara yfir u.þ.b. 15 m fyrir neðan holuna. Á vorin er þetta einn besti sjóbirtingsstaðurinn í ánni.

Hrafntóftir

Þessi fornfrægi veiðistaður hefur gefið gríðarlega mikið af fiski í gegnum árin og mælum við alltaf með því að veiðimenn kíki á þennan veiðistað. Afleggjarinn að veiðistaðnum er litlu neðar en bærinn, sem hann heitir eftir, en hann er um 5 km frá veiðihúsinu og fer þessi afleggjari einnig á veiðistaðina fyrir neðan Hrafntóftir. Síðastliðin tvö ár hefur besti tökustaðurinn verið rétt ofan við sleppitjörnina og niður um 20 metra. Eftir að búið er að veiða Hrafntóftir mælum við með því að kíkja niður á Breiðabakka og Breiðuna.

Nýja Gunnugil

Nýja Gunnugilsbreiða er frábær veiðistaður sem skilar mestri veiði á göngutíma. Bílnum er lagt við skiltið og sjá má brot rétt fyrir neðan bílastæðið. Best er að byrja að veiða fyrir ofan brotið og í kringum grjótið, annað grjót er fyrir neðan sem geymir oft lax. Gunnugilið er langur veiðistaður og skal veiða hann alveg að trjágróðrinum sem vex fram á bakkann. Menn vaða hnédjúpt fyrir ofan fyrsta grjót og vinna sig að landi þegar það byrjar að dýpka og enda á bakkanum. Laxinn getur haldið sig alveg við bakkann og ávallt skal leyfa línunni að rétta vel úr sér.

Gamla Gunnugil

Byrjar 300 metrum neðar en bílastæðið, þar er gamall árfarvegur og gott að byrja nokkrum metrum fyrir ofan, síðan er hægt að veiða sig um 50 metrum neðar en gamli árfarvegurinn endar. Gamla Gunnugilsbreiða er einstaklega góður göngustaður.

Náman / 17A

17A er frábær veiðistaður sem heldur laxi út tímabilið og bílnum er lagt beint fyrir framan veiðistaðinn. Byrjað er við kletta nefið og veiða þarf alveg niður eftir. Laxinn liggur oftast milli tveggja grjóta en hann getur einnig legið upp við eða neðan við grjótið en það borgar sig að veiða alla leið í hæga vatnið og ekki hætta að kasta alveg strax halda áfram nokkur köst við endann á veiðistaðnum.

Klöppin

Klöppin er veiðistaður fyrir neðan Ægissíðufoss og er stórskemmtilegur veiðistaður. Best er að byrja um 10 metra ofan við klöppina sem stendur upp úr í miðri ánni, það virkar bæði að þverkasta eða kasta í 45 gráður. Vinna sig síðan niður að Neðra-horni. Við mælum með því að nota tvíhendur á þessum stað og ekki of þungar túpur. Gott er að leyfa línunni að rétta alveg úr sér því fiskurinn tekur oftar en ekki þegar línan er orðin bein. 

Ægisíðufoss

Ægissíðufoss í allri sinni dýrð, það er mikil lkraftur á þessum veiðistað. Byrjað er að kasta rétt fyrir neðan foss og hægt er að veiða breiðuna alla leið niður að klöppinni. Fossinn er einstaklega skemmtilegur göngustaður. Gott ráð beint fyrir neðan nefið sem er í miðjum fossinum þar sem er hylur er að kasta í átt að nefinu og láta línuna sökkva og strippa svo fluguna því þar vill fiskurinn hvíla sig áður en hann heldur áfram upp ánna. Ævintýrin gerast í fossinum.

Hornið

Hornið er fyrsti veiðistaður fyrir ofan Ægissíðufoss. Lagt er á bílastæðinu við fossinn og gengið upp ánna. Það þarf að vaða að þessum veiðistað, best er að vaða fyrir ofan flúðirnar og standa á sandeyrina sem sést stundum og er staðsett fyrir neðan þessar litlu flúðir. Öruggast er að tveir veiðimenn fari saman og styðji hvorn annan. Hornið er veitt niður í hraðann stút, kasta alveg að grasbakkanum og láta reka niður í stútinn. Hornið gefur væna laxa á göngutíma.

Árbugur

Þessi veiðistaður er staðsettur mitt á milli Doktor og Hornsins. Hægt er að ganga að honum frá báðum þessum stöðum. Best er að veiða Árbug austan megin, þessi veiðistaður ber þetta nafn þar sem hylurinn liggur í bug, Best er að ganga yfir ánna ofan við staðin og ekki á flúðunum þar sem steinarnir eru sleipir. Gott er að byrja við litla hólmann sem er neðan við Reyrhólma. Hylurinn er í miðjum árfarvegi og stoppar þar alltaf fiskur og geymir staðurinn fisk vel fram á haust, best er að standa nokkra metra frá hylnum og veiða sig að næstu flúðum. Við mælum einnig með að taka Reyrhólma á leiðinni niður að Árbug sem er næsti staður fyrir ofan en staðurinn er skemmtileg lítil breiða.

Doktor

Hefur verið með heitustu veiðistöðum árinnar síðastliðin ár. Beygt er við skilti sem stendur á Rangárbakki og síðan til hægri meðfram ánni. Doktor er í raun tveir veiðistaðir og almennt eru þeir kallaðir Efri Doktor og Neðri Doktor. Efri hlutinn byrjar rétt neðan við sleppitjörnina. Efri hlutinn er frekar djúpur og fiskar leitast við halda sér í dýpri hlutanum á hylnum. Þegar veiðimenn eru komnir um 50 metrum neðar byrjar laxinn að leggjast einnig á grynningar við bakkann, þá erum við komin í neðri hlutann og þá er best að vaða ekki út í. Þar er einnig dýpsti parturinn á hylnum og vill laxinn almennt bunka sér niður með breiðunni. Við mælum með að nota nettar tvíhendur eða switch stangir á þessum stað og passa að hafa ekki of langa sökktauma þar sem breiðan fyrir neðan er ekki djúp. 

Rangárflúðir

Rangárflúðir eða Homepool er án efa einn fallegasti veiðistaðurinn í ánni, ef ekki á Íslandi. Rangarflúðir eru beint fyrir neðan veiðihúsið. Hafa skal í huga þegar gengið er að flúðunum að fiskurinn getur legið mjög nálægt landi, sérstaklega á morgnanna. Rangárflúðirnar eru a.m.k. tveir veiðistaðir, sandeyri fyrir ofan og flúðirnar sjálfar. Best er að byrja efst á sandeyrinni og alls ekki vaða meira en tvö skref út í ánna og veiða sig alveg niður á flúðarbrotin. Þegar flúðirnar sjálfar eru veiddar veður veiðimaður rétt fyrir neðan brotin og kastar að stóru grjóti sem er staðsett nálægt brotinu og allt þar í kring er mögulegt að setja í lax. Síðan er gott veiða sig alveg niður hraða strenginn. Einnig er hægt að vaða á flúðunum eftir fyrsta rennsli og kasta í átt að austur bakka og vinna sig ská niður að húsinu.

Tjarnarbreiða

Stórskemmtilegur veiðistaður sem hægt er að veiða bæði frá bakka og eins er hægt að vaða út í ánna og kasta að bakkanum. Best er að byrja út í ánni og kasta að bakkanum, það myndast áll rétt við bakkann og fiskurinn heldur sig í honum og veiða skal alveg frá merkinu niður að girðingu. Veiðistaðurinn heldur fiski allt tímabilið. Veiðstaðurinn er rétt fyrir neðan Hellisey.

Hellisey

Það má segja að Hellisey sé sett saman af þremum tökustöðum, bakkinn meðfram eyjunni, klöppin sem er út í miðri ánni og síðan kemur blettur við bakkann rétt fyrir neðan þar sem brotinu lýkur til vesturs. Hellisey er staðsett fyrir neðan brúnna og er keyrt undir brúnna til að komast að staðnum. Árangursríkasta aðferðin til að ná því besta úr þessum veiðistað er að veiða brotið sem myndast við þessa klöpp og þá er vaðið út í ánna og kastað beint í átt að hinum bakkanum. Síðan er miðað á brotið og það er mikilvægt að flugan hitti á brotið. Sunray virkar mjög vel hér og ef það er mikil sól þá má prufa að setja grænt gúmmí á sunray túpuna í stað þess að nota glært. Einnig er Frances á gullkrók mjög góð þarna í stærð 12.

Nes og Krýjueyri

Nes hefur heldur betur sótt í sig veðrið síðastliðin ár og mikil aukning hefur verið af fiski sem stöðvar þarna. Til að komast að þessu veiðistað þurfa að veiðimenn að aka gegnum Hellu og keyra upp með ánni þangað til þeir koma að hundagerði og það er hægt að leggja bílnum þar. Við mælum með að þeir sem eig Nes byrji töluvert ofar. Best er að byrja við eyjuna þar sem er kantur út í miðri á og fylgja síðan kantinum alveg niður.Síðan tekur bakkinn við og það er ekki síðri veiðistaður sem heitir Krýjueyri þar er bakkin djúpur og getur haldið mikið af laxi.

Stallmýrarfljót

Stallmýrarfljót er lengsti veiðistaðurinn í Ytri Rangá. Hægt að veiða hann vestan og austan megin. Ef hann er veiddur vestan megin, þá er gott að byrja við útrennslið á sleppitjörninni og standa á bakkanum eða taka í mesta lagi eitt skref út í ánna. Stallmýrarfljót heldur mikið af fiski og það er góð regla að staldra ekki við of lengi á sama stað þar sem laxinn getur legið víða. Eitt kast og tvö skref er fín regla í Stallmýrarfljóti ef veiðimenn ætla að komast yfir allt svæðið. Veitt er alveg niður þar sem að bakkinn lækkar og hægist á rennslinu. Alltaf að leyfa línunniað rétta úr sér því laxinn er líklegur að taka fluguna þegar línan hefur rétt úr sér. Varist að ganga á háa bakkanum, ef veiðimenn ætla að byrja neðar á staðnum þá mælum við með að ganga yfir túnið svo að laxinn styggist ekki fyrir þann sem kemur á eftir. Ef veiðimenn vilja veiða Stallmýrarfljót austan megin, þá eru tvær leiðir til að gera það, annað hvort að keyra gegnum bæinn Hellu og leggja hinum megin við nes tjörn eða vaða ská yfir svæða mörkin í átt að eyjunni. Við mælum frekar með að fara í gegnum Hellu það er öruggast. Best er að byrja við miðju eyju og veiða sig síðan niður. Óþarfi að vaða of djúpt, gott er að standa í hné eða læris dýpt og fara hratt yfir svæðið. Betra er að taka fleiri umferðir en færri.

Jónsbreiða

Jónsbreiðaer næsti veiðistaður fyrir ofan Stallmýrarfljót og hægt er að nálgast hann bæði vestan- og austan megin. Vestanmegin er farið sömu leið og að Stallmýrarfljótiog lagt þar, en þaðan er best að vaða yfir á hinn bakkann og stefna í átt að eyju frá skilti, þó þarf að gæta varúðar þar sem straumur getur verið mikill og dýpi breytilegt. Austan megin er lagt við Ólastreng og gengið niður með ánni.Fiskur getur legið á löngum kafla, frá því þar sem áin mjókkar og niður að Stallmýrarfljótseyju þar sem hún breiðir úr sér. Í hraða straumnum er gott að vaða í hnédýpt, kasta að hinum bakkanum og vinna sig niður að eyju, en í hægari straumi er betra að færa sig nær austurbakkanum. Fiskur heldur sig að mestu austanmegin en dreifir úr sér neðar á breiðunni. Athugið að veiðimenn mega veiða austan megin niður að litlum læk sem rennur í ána en ekki vestan megin þar sem það tilheyrir öðru svæði. Það hefur reynst veiðimönnum vel að nota ekki of þungar flugur á Jónsbreiðu; rauður eða svartur Francis á gullkrók nr. 12 hefur gefið vel í gegnum tíðina, ásamt hálftommu Sunray eða Collie Dog.

Ólastrengur

Er skemmtileg og nett breiða. Almennt ekki djúp en það eru djúpir blettir sem fiskurinn heldur sig á. Veiðistaðurinn nær frá sleppitjörn og niður fyrir hornið þar sem eyjan endar. Best er að veiða þennan stað austan megin og ekið er í gegnum Hellu og beygt til vinstri í áttina að Gunnarsholti, þaðan er ekið að afleggjaranum að Gilsbakka og akið þann veg upp að vegamótum, þar kemur skilti sem stendur Ólastrengur. Við mælum með að nota fyrst nettar flugur á þessum veiðistað. Fiskurinn leitast við að halda sig mjög nálægt bakkanum.

Árbæjarbreiða

Þennan stað er hægt að veiða vestan megin og austan megin en hún hefur yfirleitt gefið betri veiði af austurbakkanum en hins vegar hafa síðustu 2 ár verið betri vestan megin. Til að byrja með er breiðan djúp en grynnkar svo við endann. Oft heldur lax sig við grunna endann en vert er að byrja veiða dýpri hlutan. Þegar það komið að veiðistaðnum vestan, þurfa veiðimenn að aka framhjá Stallmýrarfljót afleggjaranum, síðan kemur mikið gróið land, veiðimenn beygja síðan við skilti sem stendur Breiðibakki. Hægt er að leggja á bílastæði við Árbæjarfoss og ganga þaðan að Árbæjarbreiðu sem blasir við um leið og menn koma yfir stóran hól. Ef farið er austan megin er ekið alveg eins og í Ólastreng og gengið þaðan upp.

 

Sjá allar lýsingar
Sjá allar lýsingar