Leirá í Leirársveit

Leirá í Leirársveit
Eftir Árna Kristinn Skúlason
Það fer ekki mikið fyrir Leirá en hún hefur sannað sig sem ein besta sjóbirtingsá á Vesturlandi síðustu ár. Regla númer eitt í Leirá er að fara varlega að veiðistöðum og helst vera á hnjánum til að styggja ekki fiskinn. Sjálfur hef ég mest stundað Leirá á vorin enda eru fáir staðir betri til að ná í fyrstu fiska tímabilsins, ég nota alltaf léttar græjur til að styggja ekki fiskinn og þá er ég aðallega með stöng fyrir línu 6 og langan taum. Ef það er lítið vatn er mjög mikilvægt að hafa á bak við eyrað að fiskur getur fælst við að sjá flugulínuna, þá er gott að vera með allavega eina og hálfa stangalengd í taum og passa að taumurinn fari eingöngu yfir tökustaðinn en ekki línan. Í algjörri stillu er betra að hafa þurrflugu sem tökuvara í staðinn fyrir gult eða appelínugula kúlu sem lendir eins og steinn fyrir ofan fiskinn.

Í ánni er talsvert um holbakka en sjóbirtingur er afar hrifinn af þeim, oftast er best að veiða slíka staði af lægri bakkanum því fiskurinn getur fundið fyrir því þegar maður gengur á slíkum bakka. Veiðistaðir 7 og 13 eru góð dæmi um holbakka og oftar en ekki er fiskurinn undir bakkanum og kemur undan honum til að taka fluguna. Í ánni er töluvert af ómerktum stöðum þar sem birtingurinn getur verið undir eða við holbakka og mæli ég eindregið með að veiðimenn kasti á alla álitslega staði því það skilar sér oftar en ekki í fisk.
Fluguval fer eftir árstíma og vatnsmagni, en ég hef aldrei fengið sjóbirting í Leirá á straumflugu sem er frekar undarlegt. Allir mínir hafa komið á púpur og þá eru Pheasant Tail, Copper John og hin nafntogaða Squirmy Wormy mínar uppáhalds. Í litlu vatni minnka ég flugurnar umtalsvert og hef fengið þó nokkra fiska á Pheasant Tail í stærð 14 og 16, í slíkum aðstæðum fæla stórar flugur fiskinn og þá sérstaklega straumflugur. Þegar mikið vatn er í ánni er gott að vera með Squirmy þar sem áin grefur gjarnan í moldarbörð eða torfur sem innihalda maðk, þetta er eiginlega “Match the hatch” við þessar aðstæður þar sem ánamaðkar og fleiri ormar fara upp á yfirborðið við þessar aðstæður og skolast niður með ánni.

Síðan í meðalvatni er gott að vera með tvær púpur í mismunandi stærðum, ein í 10 og önnur í 14 er góð uppsetning og þá mæli ég með að skipta þeim reglulega til að finna fluguna sem virkar best. Önnur góð regla er að festast ekki á sama veiðistaðnum, það er alltaf fiskur á stöðum eins og 13, 11, 7 og 4 en það er gott að vera ekki að berja sömu staðina of mikið. Gangið upp frá veiðihúsi og kastið á alla álitlega staði, það er oftar en ekki fiskur á hverjum merktum veiðistað og það eru margir ómerktir staðir sem geyma líka fisk.
Sjóbirtingurinn er á talsverði ferð á svæðinu og ég held að hann fari jafnvel niður í sjó og aftur upp í á. Ég fór i Leirá 1. maí í fyrra ásamt Ragnari Danner og Ísaki Vilhjálmssyni og við fengum 18 fallega sjóbirtinga og þeir komu flestir úr veiðistað 4. Við vorum að veiða í blankalogni og sól sem er mögulega verstu aðstæður sem er hægt að fá fyrir sjóbirtingsveiðar en við minnkuðum flugurnar og notuðum grennri tauma og það skilaði sér heldur betur.



