Til baka

Jökla

Jökla

Eftir Þröst Elliðason

Myndir Þröstur Elliðason, Nils F. Jörgensen og fleiri

það er óðum að koma meiri reynsla á Jöklu sem laxveiðiá þó að eflaust eigi fjölmargir veiðistaðir eftir að koma í ljós ennþá. Formlega hófst veiði í henni árið 2007 er lokað var fyrir rennsli úr Kárahnjúkastíflu og síðan þá hafa reynsla og þekking á vatnasvæðinu aukist með hverju ári. Hér verður farið yfir svæðin og helstu veiðistaði og óhætt er að segja að fáar ár bjóða upp á eins mikinn fjölbreytileika og Jöklan og hliðarár hennar. Lýsingin hefst á efsta þekkta veiðistaðnum, svo er farið niður Jökuldalinn og endar að lokum í hliðarám Jöklu í Jökulsárhlíð. Jökla er um 120 km að lengd, plús 3-4 tærar hliðarár sem eru það stórar að hægt er að stunda stangveiði í þeim allt sumarið. Veitir það öryggi þegar Jökla fer í yfirfall á veiðitíma og þá er stöngum líka fækkað niður í 4-6 á dag. Annars eru það á bilinu 6-12 stangir sem eru að veiðum á tveimur svæðum fyrir yfirfall en meðaltalið er um 8 stangir að jafnaði yfir allt sumarið.

Efri hluti Jöklu

Sjálf Jökla er um 120 km löng og efsti þekkti veiðistaðurinn er Tregluhylur sem er um 82 km frá sjó. Ofan við hann er langur, djúpur stokkur og efst þar er flúð sem heitir Kastið. Ekki hefur veiðst lax fyrir ofan flúðina ennþá en einhverjir segjast hafa séð lax í hinu fræga Stuðlagili sem er 5-6 km ofar. Frá Tregluhyl og niður að svokallaðri Hofteigsbreiðu eru um 40 merktir veiðistaðir á um 27 km löngu svæði sem er í ágúst selt sér sem 6 stangir sem Jökla II þar til kemur yfirfall. Sérstök gisting án þjónustu stendur þá til boða fyrir veiðimenn á miðju svæðinu þar sem stutt er í marga veiðistaði. Í júní og júlí fylgir þessi efri hluti aðalsvæðinu en venjulega er komið eitthvað af laxi þangað upp eftir á þeim tíma þó besti tíminn sé yfirleitt í ágúst.

Tregluhylur er hylur sem ég fann í lok september 2018 er ég var að leita að fiski eftir yfirfall og er hann nefndur eftir lítilli hliðará Treglu sem rennur í hylinn neðst að austan. Þarna fellur áin nokkuð þröng og mjó þar til hún steypist fram af broti og þar fyrir ofan brýtur áberandi á stórum steini úti í miðri á og aðaltökustaðurinn er fyrir ofan steininn. Einnig með kantinum austan megin við hann og niður rennuna þar en sjaldan neðar nær brotinu þó það líti veiðilega út. Þó lenti ég í ævintýri eitt kvöld síðla í ágúst er ég setti í 8 laxa á hitch frá steini og niður úr og landaði 5 þeirra. Sumarið 2023 veiddist lúsugur lax þarna og ekki eru margir staðir á landinu sem hafa gefið nýrunninn lax svo langt frá sjó. Tregluhylur er eingöngu fyrir þá sem eru í góðu formi því aðgengi er erfitt og þarf að klöngrast niður kletta vestan megin eða stóra brekku austan megin. En það getur verið þess virði.

Neðan við taka við nokkrir veiðilegir hyljir án nafna sem hafa verið lítið stundaðir og eingöngu hægt að veiða austan megin frá bænum Merki. Síðan rennur Jökla, að mestu, í óveiðanlegu gljúfri 1-2 km en þá tekur við Sundið aðeins neðan við brúna þar yfir ána að bænum Merki. Þar er mikil breiða sem endar í flúð en laxar geta legið nokkuð víða á þessu svæði sem lítið er stundað. Rétt við veginn aðeins neðar eru svo Klifahylur og Arnórsstaðahvammur en sá fyrrnefndi leynir á sér. Hann hefur verið að gefa laxa og gefur oft lax ef menn skjótast út úr bílnum á veginum rétt við þennan veiðistað og taka nokkur köst. Fyrir neðan Arnórsstaðahvamm tekur við 2 km langt gljúfur sem þó er hægt að fara um. Allavega eru fimm merktir veiðistaðir þar og eflaust eru fleiri líklegir en þarna er veiði nánast ekkert stunduð og ennþá hef ég ekki kannað þá sjálfur.

Skógarstrengur er langur stokkur sem endar í lítilli breiðu og síðan broti. Lax liggur þarna frá broti og næstu 50 metra upp en virðist ekki vera uppi í dýpinu ofar. Þarna liggur oft mikið af laxi er líður á sumarið og er hann þá gjarnan við fyrstu steinana þar sem byrjar að grynnka úr dýpinu frekar en á blábrotinu. Oft nær austurlandinu í kantinum þar og þarf þá löng köst en veitt er að mestu vestan megin enda góður vegaslóði langleiðina þar að Skógarstreng. Hann ber nafn sitt af skógarlundi sem blasir við á austurbakkanum fyrir ofan veiðistaðinn. Þann 18. ágúst 2020 fékk ég símtal frá Pétri Broddasyni leiðsögumanni og vini að hann ætlaði að reyna að koma dóttur sinni í Maríulax á efri svæðum sem voru laus og höfðu ekki verið stunduð lengi. Er ég heyrði í honum tveimur tímum síðar var hún komin með fjóra laxa úr Skógarstreng svo það var fljótt afgreitt. Reyndar skaust ég upp eftir með þeim í framhaldi og við fengum þennan dag samtals 17 laxa víða á efri hluta Jöklu enda lítil ástundun almennt þarna upp frá þá og flestir staðir vel hvíldir.

Hreindýrabakki er flest ár einn af bestu veiðistöðum Jöklu og er beint fyrir framan bæinn og hótelið á Skjöldólfsstöðum. Hægt er að keyra slóða að honum frá þjóðvegi 1, sem er vestan megin upp dalinn, í stutta vegalengd og er hann auðveiddur veiðistaður þar sem varla þarf að vaða neitt. Strengur er efst við bakkann þar sem veitt er frá landi sem dreifist svo niður í mikla breiðu fyrir neðan. Lax liggur í strengnum og sérstaklega í speglum fjær hinum megin við aðalstrenginn og svo aðeins niður á breiðu. Grjót eru hér og þar og í miklu vatni getur hann verið neðarlega á breiðunni líka. Grunnur staður og í litlu vatni eins og sumarið 2023 hélt hann laxi illa.

Gauksstaðabreiða er feikilega skemmtilegur og fjölbreyttur staður þar sem áin kemur úr beygju og eru víða grjót og rennur fyrir miðju og austan megin árinnar en veitt er af vesturbakka og kastað yfir miðja á til að ná í laxinn. Langt veiðisvæði en miðsvæðið og neðri hluti þessarar breiðu eru oftast gjöfulust. Gauksstaðabreiða er oft einn af betri veiðistöðum í efri hluta Jöklu.

Neðan við taka við fjölmargir veiðistaðir í um 3 km að brú við Hjarðarhaga sem er þar yfir Jöklu. Slóðar eru að þeim flestum og staðirnir misgóðir milli ára og minna stundaðir en ég mæli með Þröskuldi, Steinaröst og Eyjólfsbreiðu til að nefna einhverja á þessum hluta. Neðan við brúna taka við nokkrir af bestu veiðistöðum árinnar er líður á sumarið og hér verður farið yfir þá helstu.

Skuggahlíðarstrengur er þar efstur þar sem er strengur undir hárri hlíð austan megin og venjulega er hann veiddur af eyri á móti vestan megin, þó má veiða undir hlíðinni líka. Lax getur tekið alveg upp undir miðjum streng en er þó mest neðarlega fyrir ofan stóran stein sem er áberandi neðst en einnig í rennu fyrir neðan hann með austurlandinu. Þarna er nokkuð grýtt og erfitt vað og mælt er með löngum köstum að hlíðinni.

Malarsveigur er einn af mínum uppáhaldsstöðum í Jöklu og var hann lítið stundaður fyrr en fyrir 4 árum er slóði var gerður að honum. Veitt af austurlandi og er það einn þægilegasti veiðistaður árinnar til að vaða með fíngerðri möl. Auðvelt að vaða þar og veiða niður streng sem endar í fallegri breiðu. Lax er þar víða en mest neðarlega í strengnum í kanti þar sem grjót liggja niður með honum nær landi hinum megin. Sumarið 2020 um miðjan ágúst skaust ég í hann í fyrsta sinn og veiddi bara í um klukkustund. Setti samt í fjóra laxa upp í 94 cm á Sunray Shadow sem er reyndar sterkasta flugan á Jöklusvæðinu er óhætt að segja. Það má líka veiða undir hárri hlíð af vesturlandinu en er þá nokkuð klöngur að komast að og mjög hált að vaða í grjóti þar en menn eru þá í mikilli nálægð við laxinn í staðinn.

Þrastarbreiða er langur veiðistaður sem byrjar í hröðum streng rétt neðan við þar sem lítil á sem heitir Hnefla kemur út í Jöklu austan megin og endar í langri breiðu neðar við Mælishól. Það er áberandi stór hóll gerður úr stuðlabergi sem setur mikinn svip á umhverfið. Þarna fékk ég nokkra laxa í lok júlí 2013 er veitt var í fyrsta sinn svo ég ber ábyrgð á nafninu.

Hnefla hefur góð skilyrði til uppeldis náttúrulegra seiða og auk þess er Jökla sjálf á þessum hluta Jökuldals með grófan og góðan uppeldisbotn. Því er náttúrulegi stofninn í mikilli uppsveiflu á efri og miðhluta Jöklu samkvæmt seiðamælingum eins og sjá má líka á meðfylgjandi grafi hér. Gular súlur eru sleppiseiði en aðrar villt seiði á misjöfnum aldri. Laxinn í Hneflu er að bíða eftir haustrigningum á Þrastarbreiðu og hann getur t.d. legið mjög nálægt landi austan megin efst í strengnum. Mjög er stórgrýtt þar og síðan á allri breiðunni sem tekur við. Þar liggur lax víða á ca. næstu 200 metrum og margir steinar eru þar sem lax getur legið við. Erfitt er að vaða breiðuna austan megin og nú er farið aðallega vestan megin enda eru allar aðstæður betri þar til veiða.

Mælishólsbreiða tekur strax við og er rétt fyrir neðan, móts við hólinn en best er að veiða vestan megin þar sem lækur kemur út í og næstu 50 metra eða svo. Þetta er lítill staður sem leynir á sér og auðvelt er veiða þar bara frá bakkanum.

Nesbreiða er frábær veiðistaður og auðveiddur af bakkanum að austanverðu. Bílnum er lagt venjulega við girðinguna þar við tröppur, örstutt er niður að bakkanum þar og veitt niður að broti á grunnri breiðu. Lax getur líka verið ofar í meira dýpi og strengnum þar og oft er mikið af laxi á öllum þessum veiðistað alveg niður á brot er líður á sumarið. Fyrir neðan eru Ferjuhylur og Hofteigsbreiða sem eru stórir og langir staðir með lax ofarlega og miðsvæðis helst en eru ekki veiddir eins reglulega og staðirnir fyrir ofan.

Jökla

Frá opnun 24. júní og fram í byrjun ágúst er þetta svæði veitt með 6-8 stöngum frá Skipalá neðarlega í Jökulsárhlíð og alveg upp í Tregluhyl, ásamt Kaldá og Laxá og eru þetta þá gríðarlega víðfeðmar slóðir. Síðan breytist svæðaskipan snemma í ágúst og svæðið styttist að ofanverðu og hefst þá neðan Hofteigsbreiðu og ofan við svokölluð Húsármóts.

Húsármót (Church pool) er einn af gjöfulustu veiðistöðum Jöklu. Þetta er löng breiða þar sem lax er víða, frá streng efst uppfrá við stóra steina þar og síðan alveg niður á brot um 150 metra neðar. Hliðará sem heitir Húsá kemur í Jöklu neðst á brotinu og nýlega hefur komið í ljós að hún góð uppeldisá seiða og eflaust er hluti laxins í Húsármótum að bíða eftir haustinu til hrygningar í henni. Veitt er frá báðum bökkum en vestan megin þarf að vaða nokkuð út til að ná í laxinn fyrir miðju og einnig yfir á austurbakkann þar sem hann liggur frekar. Í miklu vatni er það erfitt og í raun eru Húsármótin oftast veidd af austurlandinu og þá nær legustöðum og styttri köst viðhöfð. Meira veiðist neðan til, sérstaklega út af skiltinu þar og rétt neðan við það. Laxinn liggur í rennum og skálum um allan þennan víðfeðma veiðistað á frekar grunnu vatni og getur oft verið óhemju mikið af laxi þarna stökkvandi um allt. Til að komast að veiðistaðnum vestan megin þarf að keyra slóða framhjá kirkjunni við bæinn Hofteig og því hefur komið til enska nafnið Church Pool á staðinn líka.

Svelgur heitir annar gjöfulur veiðistaður sem tekur við aðeins neðar. Hann rennur fyrst djúpt á milli kletta sem opnast svo í allt að 200 metra langa og frekar grunna breiðu niður á brot. Lax getur verið rétt neðan við klettana og alveg niður á brot en er að öllu jöfnu mest við stóran stein eða smáflúð sem brýtur á ofarlega á breiðunni nær austurlandinu. Í Svelg safnast oft saman mikið af laxi er líður á sumarið en það er eins og það séu oft sömu laxarnir og ættu að vera rétt ofar í Húsármótum því sjaldan eru báðir staðirnir inni á sama tíma. Þetta er þægilegur veiðistaður og oftast veiddur austan megin af bakkanum, þó má veiða líka vestan megin en þá er töluvert vað niður breiðuna til að ná í hann. Gott aðgengi er þarna eins og á Húsármótunum og eru bílastæðin alveg á árbökkunum á báðum stöðum.

Frá Svelg og niður að hinum þekkta veiðistað Hólaflúð eru fjölmargir veiðistaðir á um 5 km löngum kafla. Þeir eru minna stundaðir og sumir þeirra hafa varla verið veiddir í raun og er því eflaust meiri lax í þessum hluta Jöklu en tölur segja til um. Það má nefna nokkra staði þar eins og Hvannárbreiðu þar sem áin fellur í streng með vesturlandinu og endar í langri breiðu. Besti staðurinn er um 50-70 metra ofan við rafstöðvarhús sem er þar á bakkanum og lax getur legið nálægt landi við stórgrýti þar og sérstaklega út af litlu nefi sem skagar aðeins út frá bakkanum. Fyrir neðan tekur svo við Hreppstjórabakki sem geymir oft fisk ofarlega, einnig Stekkjarlæksbreiða sem er stór og mikil breiða og helst lax neðarlega við stein nálægt línu sem liggur yfir breiðuna. Þessir staðir eru allir veiddir að vestanverðu yfirleitt. Neðar er veitt oftast að austanverðu en þar eru staðir sem sjaldan eru stundaðir eins og Holbakki, Forvaði, Teigarárbreiða, Deild og Réttarhylur. Reyndar er sá síðastnefndi víst einn fallegasti veiðistaður Jöklu en hefur nánast aldrei verið veiddur og undirritaður verður að viðurkenna að hafa ekki ennþá komið á þann veiðistað. Áður en við komum að Hólaflúð verður að minnast á Stekkinn, mikil breiða stutt fyrir ofan flúðina sem lax hvílist á eftir að hafa farið upp fyrir fyrirstöðu fyrir ofan Hólaflúð. Það er löng renna með austurlandinu sem verður að vaða út að og það er ekki auðvelt og mjög hált en í miklu vatni má veiða þennan stað frá bakkanum því þá liggur hann nær landi.

Hólaflúð (Aquarium pool) er án efa besti veiðistaður Jöklu á hverju ári og einn af betri veiðistöðum landsins með hátt í 200 laxa árlega á einungis 1,5 mánaða veiði að meðaltali vegna yfirfalls sem stöðvar veiði þá í sjálfri Jöklu. Áin kemur þarna úr litlu en þröngu gljúfri sem heitir Valabjörg og efst í því er lítill foss sem lax virðist ekki ganga upp í, í miklu vatni og köldu og safnast þá fyrir á flúðinni. Í litlu vatni og háum vatnshita rýkur hann í gegn og gengur þá hratt upp Jökuldalinn og þá er meiri hittingur á hann í Hólaflúð. Geggjaður veiðistaður í stórkostlegu umhverfi klettanna í kring eins og sjá má á opnumyndinni í þessari grein. Ofan af bílastæðum og klettum má sjá laxa liggja í botninum og stundum er flúðin pökkuð af laxi og því kalla erlendir veiðimenn staðinn gjarnan Aquarium pool eða fiskabúrið. Laxinn er um allan hylinn og alveg niður á blábrot en þó oft meira nær austurlandinu í skálum, eins og má sjá á smærri myndinni í upphafi greinarinnar. Rétt fyrir ofan útfallið er stór steinn í botni og þar er líka alltaf lax. Á morgnana er hann líka nær þeim megin sem veitt er en getur styggst og fært sig þá yfir að hinum bakkanum ef menn fara ekki varlega. Oft er ævintýralega veiði hægt að fá úr þessum stað, t.d. við opnun 2022 fékk ein stöng 7 laxa fyrstu þrjár klukkustundirnar og setti í fleiri og alla á hitch. Laxinn hafði þá safnast þarna saman fyrir opnun og hann var á í hverju kasti. Leiðsögumaðurinn var jafnvel stundum ekki búinn að sleppa síðasta laxinum úr háfnum áður en sá næsti var komin á hjá veiðimanninum.

Pallarnir (The Platforms) eru í raun fjórir frábærir veiðistaðir sem taka við fyrir neðan Hólaflúð og eru allir veiddir að austanverðu eins og reyndar flestir staðir áfram niður að Laxá neðan þjóðvegs. Aðgengi er gott og bílastæðin eru rétt fyrir ofan þessa veiðistaði. Hvalbakur er lítill staður, rétt neðan við Hólaflúð, sem virkar best í miklu vatni því þá sakkar laxinn að hluta niður úr Hólaflúð að grunnri klöpp sem er rétt fyrir ofan brotið á þessum stað. Annars er hægt að hitta á hann í djúpri rennu rétt ofan við brotið við klettinn vestan megin og er þá meira sem göngustaður. Teigsbrot er djúpur hylur efst sem grynnist smátt og smátt að glæsilegu stóru broti neðst sem nær yfir alla ána. Það er alltaf lax þarna og hann tekur gjarnan á brotinu eða rétt fyrir ofan það. Geggjaður hitch staður þar sem flugan dansar á brotinu og laxinn margsinnis eltir oft áður en hann tekur. Hauksstaðabrot er að mörgu leyti svipaður staður og Teigsbrot en brotið er meira eitt risastórt V og lax getur tekið víða fyrir ofan það og í því. Löng köst á brotið fjær gefa oft góða raun á þessum stað. Sandárbrot er þar sem lítil hliðará sem heitir Sandá kemur niður á brotið og breiðan fyrir ofan það er með stóra steina hér og þar sem hann liggur við og alveg niður á brot. Erfiður staður þar sem veitt er undir klettum og veltikasta þarf flugunni út en þess virði að reyna.

Sortuhvammur er þar sem áin kemur úr djúpu gili og breiðir úr sér og endar í glæsilegu stóru V neðst á breiðunni og þarna er yfirleitt lax. Sérstaklega er gaman að taka hann á hitchið þarna.

Stapinn hefur verið merktur staður í mörg ár en ekkert stundaður fyrr en fyrir 4-5 árum þegar slóði var gerður að honum. Áin kemur þarna djúp úr gljúfri og fer í breiðu sem þrengist svo aftur í langan þröngan stokk niður að broti. Í miklu vatni liggur hann meira á breiðunni, nálægt bakkanum. Veitt er frá þar sem byrjar að grynnka í venjulegu vatni aftarlega á breiðunni og svo alveg niður á brot. Sumarið 2023 var þetta annar besti staðurinn á vatnasvæði Jöklu því ástundun var orðin mun meiri.

Frá Stapanum og niður að þjóðvegsbrú eru staðir í giljum sem misgott er að komast að.

Næst tekur við Bæjarhylur og Garðárbrot, smá ganga í þá og lítið stundaðir, síðan Sandlækjarbrot sem er glæsilegur staður en nokkuð príl í það. Bóndi benti mér á þann stað í júlíbyrjun 2020 og skaust stuttu síðar til að prófa og þá setti ég fljótlega í 93 cm hrygnu og síðan þá hefur sá staður komið sterkur inn ef farið er í hann.

Steinbogi er einn ótrúlegasti veiðistaður landsins er óhætt að segja. Þarna hverfur öll Jökla undir steinurð og kemur upp um 50 metrum neðar. Áður fyrr komst laxinn ekki lengra nema ef það kæmi mikil úrkoma og þá flóð á göngutíma svo það flæddi yfir urðina og hann kæmist yfir, sem varla var hægt að treysta að gerðist nema á nokkurra ára fresti. Árið 2012 var því gerð rás framhjá urðinni og eftir það hefur lax getað gengið upp Jökuldalinn. Hann hvílist fyrir ofan rásina og þar er oft hægt að taka lax í fyrstu köstunum og svo einnig á breiðu fyrir neðan Steinbogann en aðgengi er erfitt til þess.

Síðan taka við mikil gljúfur og þó það líti nú ekki vel út er hægt að komast að stöðum þar ef rétt er að farið alveg niður að þjóðvegsbrú. Rétt ofan við brúna er brot og nafnið Brúarflúð hefur verið nefnt varðandi þann stað. Reyndar hefur hann verið veiddur einungis í örfá skipti sl. ár og nánast alltaf verið vart við lax þá. Rétt neðan við brúna svona ca. 200 metra er önnur flúð sem ekki hafði verið veidd svo vitað væri, þótt nafnið Gljúfur væri þar merktur veiðistaður á korti. Í byrjun ágúst 2023 sendi ég veiðimann til að kanna þessa flúð og á stuttum tíma landaði hann sex löxum og missti fleiri. Bæði legnir og nýir laxar svo þetta er greinilega framtíðarstaður en daginn eftir var komið yfirfall svo nú bíðum við spenntir eftir að renna í hann aftur sumarið 2024.

Sjálfhelda er þannig staðsett að smá klöngur er á þennan stað austan megin árinnar en með göngustíg, sem hefur verið gerður nýlega, er ekki svo slæmt aðgengi lengur. Áin er breið þarna en klappir og grjót eru nálægt bakkanum sem hægt er að ná í lax í og óvenju hátt hlutfall stórlaxa hefur verið að veiðast þarna. Frekar grunnur staður og virkar best í miklu vatni.

Blöndubreiða er gríðarlega stór breiða þar sem Jöklan kemur úr giljum og opnast betur og inn í Jökulsárhlíðina þar sem hún rennur í sveigum til sjávar. Þessa breiðu er best að veiða austan megin undir klettum þar sem komið er að fyrir neðan hana og leggja bílnum þar. Ganga síðan upp með klettunum eins og hægt er og veiða svo alveg niður á brot þar sem laxar liggja hér og þar við steina eða bara á sléttum malarbotni. Eitthvað er um bleikju og sjóbirting líka á þessum veiðistað og eins á þeim næstu fyrir neðan og svo áfram niður Jökulsárhlíðina.

G- Strengur er hraður strengur sem endar í smábreiðu og hægt er að hitta á lax í göngu þar, sérstaklega neðarlega.

Klapparhylur er glæsilegur strengur sem byrjar við klappir og breiðir úr sér svo langt niður eftir ánni í auðveidda breiðu sem endar rétt ofan ármóta Laxár. Hægt er að hitta á lax um allan þennan veiðistað en einn besti legustaðurinn er á grunnu vatni rétt ofan við ármótin vestan megin, alveg við land þar. Aðallega er veitt að austanverðu af eyri sem hægt er að keyra um en neðsta hlutann má líka veiða vestan megin með stuttum köstum.

Laxá er rúmlega 2 km löng, lítil á frá Fossi og að ármótum við Jöklu. Skemmtileg og falleg veiðiá með einhendu en líka viðkvæm. Einhver lax hefur verið í henni enda ber nafnið það með sér. Sleppitjörn með gönguseiði er þarna rétt við Eiðsbreiðu sem ber nafn af bónda sem sá um tjörnina fyrstu árin. Einn af betri stöðum árinnar en einnig er góður staður aðeins ofar í Efri-Brúarbreiðu þar sem Laxá kemur undan röri undir veginum. Laxá er mjög háð vatni og í þurrkasumrum veiðist lítið en þá bíður laxinn úti í Jöklu eftir að haustrigningar hefjist. Yfir 100 laxar hafa veiðst er best lætur en líka örfáir tugir þegar aðstæður eru erfiðar. Sjóbleikja veiðist líka en mismikið milli ára. Stærsti lax úr Jöklusvæðinu sem komið hefur um 107 cm veiddist í þessari litlu á eitt haustið.

Arnarmelur er stór staður sem byrjar í hröðum streng rétt neðan við ármót Laxár og skellur svo á stóran klett og djúpur hylur tekur svo við. Úr honum er löng breiða og lax veiðist á öllu þessu svæði frá báðum bökkum. Eru það bæði lax, sem bíður eftir að komast í Laxá og göngur á leið upp Jöklu sem stoppa þarna. Einnig liggur lax á haustin langt niðri á breiðunni og hrygnir þá þar.

Við Drjúgbeit skellur áin á austurbakkann sem er með grjótvörn og er strengur niður með bakkanum sem endar í breiðu fyrir neðan. Á henni er grjót austan megin sem er góður tökustaður og svo má líka veiða neðar þar sem brýtur á fleiri grjótum. Þessi staður hefur verið lítið stundaður fyrr en sumarið 2023 og ljóst er að hann leynir á sér. Því ættu menn ekki að sleppa honum. Það má veiða af báðum bökkum, mest þá af austurbakka en líka af eyrinni vestan megin og hægt er að keyra að honum báðum megin.

Neðar kvíslast Jökla og breytir sér á hverju ári og eru þar nokkrir merktir staðir svo sem Ásendi, Fossárklöpp og Fossárgrjót en þeir hafa breyst og gefið lítið undanfarin ár.

Skipalá er skammt neðan við litla á sem heitir Fossá þar sem er sleppitjörn. Laxinn bíður úti í Jöklu úr þessari tjörn og undanfarin ár hefur hann verið mest í Skipalá sem er töluvert neðan við ármót Fossár. Þægilegur veiðistaður sem er veiddur frá landi og liggur í beygju sem endar svo á klöpp sem brýtur af. Þetta er um 100 metra langt svæði og geymir töluvert af laxi sem bíður og líka stoppar þar göngur á leið upp Jöklu.

Kaldá er vatnsmikil á sem er straumhörð og köld eins og nafnið gefur til kynna og er Veiðihúsið Hálsakot staðsett á bökkum þess. Kaldá hefur stórvaxinn sjóbleikjustofn og lax veiddist í og með en með gönguseiðasleppingum hafa sum árin veiðst um og yfir 100 laxar í þessari glæsilegu á. Það getur tekið allt að 2-4 stangir á 8 km leið upp að ófiskgengdum fossi og ef yfirfall kemur síðla sumars í Jöklu er þetta góður kostur með hinum hliðaránum í staðinn. Margir skráðir veiðistaðir eru þarna en ég nefni Einbúa við brú yfir ána neðarlega við veginn og Hálsendahyl þar sem áin kemur úr giljum og niður á eyrarnar aðeins ofar. Gjöfulasti veiðistaðurinn er Sauðárbreiða ofan við veiðihúsið þar sem lítil hliðará sem heitir Sauðá kemur í Kaldá rétt ofan við breiðuna. Í Sauðá er sleppitjörn og lax safnast saman á breiðunni sem er grunn og hröð og þægilegt að veiða þó oft þurfi að kasta alveg upp að landinu hinum megin til að hitta á hann. Ofar taka við hver glæsilegi veiðistaðurinn á fætur öðrum í giljum og ekki er hægt að keyra með þeim og því eru þau lítið stunduð. Haustið 2014 fór ég að athuga með veiði þar uppfrá vegna þess að sleppitjörn hafði verið notuð þar undanfarin ár og þar hitti ég á mesta bingó ævinnar í laxveiði. Það var á veiðistað sem heitir Lundaholur sem er grunn breiða og virkar best í miklu vatni og þar var þá allt pakkað af laxi og á fjórum tímum síðdegis setti ég í 20 laxa og landaði 12. Hann var bókstaflega á í hverju kasti enda hafði ekki verið veitt þarna allt sumarið og allir laxarnir voru frá 4-6 kg svo átökin voru mikil. Reynt var að taka sem flesta í klak með aðstoð Guðmundar veiðivarðar og fl. en ég varð að hætta veiði þegar flutningstankurinn tók ekki meira af laxi og það varð að flytja hann í klakkistur sem fyrst.

Jökla og Fögruhlíðará

Neðan við Skipalá eru nokkrir veiðistaðir þar sem hægt er að hitta á lax í göngu í Jöklu en hafa verið lítið stundaðir. Þessir staðir eru á um 5 km löngu svæði að og með Kaldárós. Einnig fylgir öll Fögruhlíðará með sem er um 12 km löng og allt þetta svæði er selt sér, frá júní fram í byrjun ágúst, einungis með fjórum stöngum. Eftir það dettur þetta svæði út og fylgir bara Jöklusvæðinu eins og nefnt hefur verið hér fyrr.

Hér verður þessu svæði lýst betur og við byrjum á efsta veiðistaðnum sem er aðeins neðan við Skipalá. Sá staður heitir Hagholt og þarna skellur Jökla á klettum efst og breiðir svo úr sér í gríðarlega langa breiðu. Veiðin er helst efst og næstu 50 metra eða svo og góð von er að hitta þarna á lax í göngu og eitthvað af sjóbirtingi og bleikju má líka finna þarna. Reyndar hugsanlega lengra niður breiðuna má líka finna fisk en ég er ekki viss um að nokkur hafi reynt að veiða hana alla ennþá.

Neðar eru sex skráðir veiðistaðir sem gefa lax í göngu áður en komið er að neðsta staðnum sem er Kaldárós. Þarna stoppa sjóbleikjan og laxinn sem eru á leið í Kaldá. Það getur verið ævintýraleg veiði þar í vænni sjóbleikju og einn og einn lax slæðist oft með. Nú er skylt að sleppa öllum bleikjum frá 45 cm og yfir og takmörk eru fyrir því hvað má hirða til að vernda þennan stofn en víða hefur hallað undan sjóbleikjunni undanfarin ár. Hægt er að keyra langleiðina niður að ósnum norðan megin og má veiða neðstu staði Kaldár líka rétt ofan við ósinn og að Raflínustreng.

Fögruhlíðará er skemmtileg veiðiá sem nær frá ófiskgengdum fossi við bæinn Hlíðarhús og niður að hinum margrómaða Fögruhlíðarós sem gerir þá samtals um 12 km langt veiðisvæði. Á veiðikorti eru 35 merktir veiðistaðir og eflaust eru þeir fleiri sem ekki hafa verið merktir. Rétt neðan við fossinn er sleppitjörn og næstu veiðistaðir eins og Neðra Gilvað og Landamerkjahylur geta verið mjög góðir. Áin rennur þarna í beygjum og gjarnan má sjá háa bakka og eyrar á móti sem eru einkennandi við hyljina. Neðar er meira um gróna bakka báðum megin og hægari straum. Víða eru veiðistaðir og þar má nefna Torfastaðabrú, Grótárhyl og svo auðvitað Langitangi sem gefur oft vel bæði af laxi og silungi. Sjóbleikju, sjóbirting og urriða má víða finna í Fögruhlíðará en með seiðasleppingum hefur laxveiðin mest náð 100 löxum.

Fögruhlíðarósinn er einn besti sjóbleikjustaður landsins og getur verið ævintýri að veiða þarna í lágfjöru en þá er besti tíminn að hitta á hana. Sveigjanlegur veiðitími vegna sjávarfalla er leyfilegur ósnum og yfirleitt er veitt af sandinum á móti fjallinu þar sem Hellisheiðin er á móti. Það er óhætt að segja að þarna sé stórbrotið umhverfi og ekki eru margir staðir magnaðri í góðu veðri. Slóðinn að sandinum er eingöngu jeppafær en það má líka veiða vestan megin undir fjallinu og er þá stutt göngufæri að ósnum. Veitt er eftir langri rás sem liggur frá sjónum og þar sem áin breiðir úr sér efst og grynningar byrja er oft best að veiða. Fiskur getur verið samt víða á svæðinu og eru bæði sjóbirtingur og lax að aukast þarna hin seinni ár.

Í þessari yfirferð hefur verið leitast við að gefa góðar og gagnlegar upplýsingar um helstu veiðistaðina en þær eru langt í frá tæmandi enda er Jöklusvæðið allt líklega víðfeðmasta veiðisvæði landsins. Ennþá vantar að uppgötva fjölmarga veiðistaði en þetta verkefni lofar svo sannarlega góðu og ég er sannfærður um að hér er að koma fram ein besta laxveiðiá landsins og jafnvel þótt víðar væri leitað. Með aðstoð landeigenda og veiðifélaga á svæðinu hefur verið gert stórátak í aðgengi að veiðistöðum og hefur samstarf okkar verið gott á þessum 17 árum sem Veiðiþjónustan Strengir hefur komið að þessu ævintýri.

Sjá allar lýsingar
Sjá allar lýsingar