Til baka

Laxá í Kjós - nokkrir valdir veiðistaðir

Laxá í Kjós - nokkrir veiðisælir hyljir

Eftir Harald Eiríksson

Laxá í Kjós og Bugða eru meðal allra bestu laxveiðiáa landsins. Laxá á upptök sín í Stíflisdalsvatni og rennur þaðan niður Kjósina um 25 kílómetra veg til sjávar í Laxárvogi. Laxgeng er hún að Þórufossi, skammt neðan Stíflisdalsvatns. Um 1km frá sjó sameinast hliðaráin Bugða Laxá og saman renna þær síðasta spottann. Í gegnum Bugðu hefur laxinn aðgang að Meðalfellsvatni og þar veiðast all nokkrir laxar á hverju sumri. Fjölbreytileiki veiðisvæðisins er gríðarlegur og vegna þessa er Laxá oft nefnd “Háskóli stangaveiðimanna". Sumarið 2021 veiddust á vatnasvæðinu tæplega 1100 laxar auk hundruða stórra sjóbirtinga sem gefa veiðiskapnum enn meiri fjölbreytileika. Veitt er á 6-8 dagsstangir hverju sinni sem gefur veiðimanninum gríðarlega fjölbreytni. Við ætlum að drepa niður við nokkra nafntogaða hylji árinnar.

Kvíslafoss

Óumdeilanlega er Kvíslafoss aflasælasti veiðistaður Laxár snemmsumars. Hins vegar hefur borið svo við síðustu tvö ár að mikið vatnsmagn hefur verið í Kjósinni og við það dettur staðurinn út og aðrir taka við keflinu. Því hefur veiðin í fossinum verið með minnsta móti því fosshylurinn er lítill og þolir laxinn illa svo hraðan straum. Heldur hann frekar ferð sinni áfram upp ána því fossinn er lítill farartálmi fyrir lax, nú eða leggst norðanverðan fossinn þar sem erfiðara er að eiga við hann. Þó Kvíslafoss sé ekki stór er hægt að dvelja þar löngum stundum því á göngutíma er lax stöðugt að skríða inn í veiðistaðinn vegna nálægðar við sjó. Venjulega er staðið við veiðarnar á klöppunum sunnan við fossinn og stuttum köstum beitt. Þarna er gott að láta lítið fyrir sér fara og varast að ganga of rösklega að fossinum frá bílastæðinu sé veður bjart og laxinn var um sig.

Fossbreiða

Um er að ræða flatann á milli Laxfoss og Kvíslafoss. Þarna hvílir göngulaxinn sig eftir að hafa farið upp strangar flúðirnar fyrir neðan. Þetta er margslunginn veiðistaður og gott að byrja í grjótunum efst á breiðunni og veiða sig alveg niður á blábrotið. Helstu mistök veiðimanna eru að vaða út á breiðuna, en best er að standa í mölinni og veiða frá landi því laxinn getur legið mjög nálægt bakkanum. Þegar komið er niður fyrir miðja breiðu er gott að nema staðar og beita frekar lengri köstum niður á brotið í stað þess að ganga niður með grasinu. Með því móti er laxinn ekki styggður og hægt að dunda sér langtímum saman.

Laxfoss

Þessi hái foss var sprengdur um miðja síðustu öld til að auðvelda laxinum uppgöngu. Hann skiptist í tvo hluta og er veiddur bæði af norðurbakka og suðurbakka. Alla jafna er syðri hlutinn betri en með hærra vatnsmagni eykst hlutur norðurbakkans í veiðinni og sé gott vatn er hann jafnvel betri kostur. Aðgengi að Laxfossi er vandasamt. Að sunnanverðu ber að varast með öllu að ganga fram á klettinn heldur fara niður ofan hans. Gott er að halda í kaðal sem settur hefur verið fyrir veiðimenn. Gott er að hefja veiðarnar á klettasyllu sem þar er. Að norðanverðu þarf að vaða út í fossinn. Þar er mikið stórgrýti og erfitt um vik. Þegar út er komið er veiðimaðurinn kominn í mikla nálægð við laxinn og veiðar hafnar með örstuttum köstum sem síðan eru lengd smá saman er niður á breiðuna er komið.

Klingenberg

Er nefndur eftir dönskum konsúl sem veiddi í Kjós og víðar fyrir um 100 árum. Um er að ræða lítinn hyl í klettunum gegnt veiðihúsinu í Ásgarði. Þarna hinkrar gjarnan laxinn sem ætlar sér að ganga upp Bugðu og er oft mikill lax í þessum litla en djúpa hyl. Segja má að Klingenberg sé gjóta sem smá saman opnast ofan í lítinn pott. Þetta er þrælgóður veiðistaður en margslunginn og sjaldnast nást þaðan margir laxar í röð. Staðið er ofan við hylinn og flugan látin dansa um hann, þar til einhver hausinn lætur freistast og grípur agnið. Þetta er auðveitt og þarna hafa margir fengið sína fyrstu laxa. Eins og víðast á neðri svæðunum skal varast það að fara upp á klettana við hylinn og láta lítið fyrir sér fara.

Káranesfljót

Er einn af neðstu veiðistöðunum á svokölluðu frísvæði. Fljótið er lygnt en ef vatn er gott er þar dágóður straumur og flugan fer vel. Ef minna er í ánni þarf að vinna fluguna og strippa hana með jöfnum drætti til að freista laxins eða sjóbirtingsins sem alla jafna er mikið af í hylnum. Þarna má alls ekki vaða og er staðið við veiðarnar í sandinum að norðanverðu ofan við bílastæðið. Fiskurinn liggur í miðri ánni en getur jafnvel verið enn nær ef svo ber undir. Klappir ganga út í fljótið að sunnanverðu og á mörkum þeirra og dýpisins liggur hann. Þarna eru gjarnan stórir fiskar og 23. júní 2021 veiddist þar 21 punda nýgenginn lax. Smáflugur og langir taumar eru lykillinn að árangri í fljótinu.

Hvassneskvörn

Er einn af hinum margrómuðu Vindáshyljum og er ásamt Helgufljóti aflasælastur þeirra. Hylurinn er yfirleitt fullur af laxi, en ef vatn eykst mikið þá færir hann sig upp í þann síðarnefnda. Þetta er skemmtilegur hylur undir klettahamri og getur fiskurinn legið frá harða streng niður í hylinn sjálfan. Ofan við hylinn, á um mittisdjúpu vatni eru grjót í botni sem gjarnan er besti legustaðurinn. Þarna þarf að kasta 45 gráður niður fyrir sig og varast að ganga beint að hylnum. Hylurinn er veiddus af suðurbakkanum og ekið að honum neðan við bæinn Stangarholt.

Pokafoss

Skemmtilegur veiðistaður á göngutíma er Pokafoss. Áður var fossinn mikill farartálmi fyrir lax, en hann var sprengdur árið 1957. Neðan hans er djúpur klettahylur og í hann safnast oft mikið af laxi. Ef vatn er gott þá liggur laxinn í rennunum við útfallið og þá er gaman við fossinn. Hylurinn er erfiður viðureignar því erfitt er að komast að honum og því er hann yfirleitt veiddur af klettabrúninni. En leitun er að veiðistað þar sem hægt er að fylgjast jafn vel með viðbrögðum laxins við flugu veiðimannsins.

Króarhamar

Við brúna yfir í Hækingsdal er Króarhamar, og flokkast hann með efsta svæði Laxár. Þetta er einn aflahæsti veiðistaður árinnar og þar liggur mikið af fiski, jafnvel frá fyrsta veiðidegi. Til að veiða hylinn er bílnum lagt við brúna, og gengið niður að staðnum ofan hennar til að styggja ekki hylinn. Í litlu vatni er laxinn undir brúnni, en eftir því sem vatn eykst færir hann sig neðar á breiðuna. Þarna eru gjarnan stórir laxar.

Golfstraumur í Bugðu

Hefur síðustu ár verið aflahæsti veiðistaðurinn í Bugðu. Þetta er fallegur grasbakki miðja vegu frá ármótum Laxár að Meðalfellsvatni. Hér er um að gera að byrja efst, ofan við grjóthrúguna og veiða sig niður hylinn. Gott er að standa vel ofan við veiðistaðinn og varast að ganga niður með grasinu því þá er hylurinn styggður með öllu og úti von um veiði.

Sjá allar lýsingar
Sjá allar lýsingar