Til baka

Mallandsvötn á Skagaheiði

Mallandsvötn á Skagaheiði

Eftir Einar Pál Kærnested

Þarna erum við með skemmtilegt veiðivatnasvæði á Skagaheiðinni í útleigu til veiðimanna. Mallandsvötn eru, að mínu mati, falin perla í veiðivatnaflóru landsins. Á þessu svæði hafa veiðimenn aðgengi að 5 veiðivötnum á Skagaheiði algjörlega út af fyrir sig. Það er helst refurinn sem gæti rekist á veiðimenn þarna í friðsældinni. Við bjóðum einnig upp á gistingu í íbúðarhúsinu að Mallandi en svo eru það hinir sem vilja taka þetta alla leið og tjalda á heiðinni.

Í vötnunum veiðast staðbundinn urriði og bleikja, mest eru þetta 1-2 punda fiskar en stærri fiskar leynast þar innan um líka. Veiði er einnig í lækjunum við vötnin. Helst eru það fluguveiðimenn sem sækja vötnin en heimilt er að veiða á flugu, spún og maðk. Ágætis vegslóði er frá Skagavegi upp á Skagaheiði fyrir landi Mallands og er hann fær óbreyttum jeppum. Skjaldbreiðarvatnið er ekki langt frá Skagavegi en ganga þarf ca 400 metra leið yfir hæð frá veginum. Sumir segja að þetta sé eitt fallegasta vatnið á Skagaheiðinni.

Frá veiðiveginum er 2 km akstur upp að Urðartjörn. Síðan eru aðrir 3-4 km að Selvatni, Álftavatni og Rangártjörnum. Þarna eru lækir á milli vatnanna sem geta verið glettilega vatnsmiklir. Þar sem veiðivegurinn endar, fyrir landi Mallands, er ca. 1 km langur gangur að Aravatni en það er að hluta innan Almennings á Skagaheiði. Algengt er að fólk tjaldi við Selvatn eða Álftavatn og gangi svo á milli vatnanna meðfram lækjunum.

Við hjónin eignuðumst Mallandsjarðirnar haustið 2022. Áður áttu hjónin Ásgrímur Ásgrímsson og Árný S. Ragnarsdóttir jarðirnar þar sem þau ráku myndarlegt sauðfjárbú og seldu leyfi í vötnin í áratugi. Föst búseta á jörðunum lagðist af fyrir 17 árum síðan og frá þeim tíma tóku eigendur Ketu við sölu veiðileyfa en þeir seldu og selja einnig veiðileyfi í eigin landi. Veiðileyfi í Mallandsvötn eru seld sér og þau veita aðgengi að fimm veiðivötnum í landi Mallands, Skjaldbreiðarvatni, Urðartjörn, Selvatni, Álftavatni og Rangártjörnum. Stangardagurinn kostar 5.000 kr og við seljum hámark 8 stangir í vötnin á dag og reynum að hafa eingöngu 1 eða 2 hópa á staðnum í einu.

Algengt er að 4-6 veiðimenn séu að bóka vötnin hjá okkur í 2-3 daga og þá mælum við með að hópurinn taki allar 8 stangirnar og hafi þar með allt veiðisvæðið út af fyrir sig. Boðið er upp á gistingu í íbúðarhúsinu á Mallandi og er húsið selt í einu lagi. Í húsinu eru fjögur 2ja manna herbergi og svo er svefnsófi fyrir 2. Samtals geta því 10 manns gist í húsinu í senn. Í húsinu er eldhús, baðherbergi með sturtu, þvottahús með þvottavél og þurrkara og stofa auk svefnherbergja. Bara strangheiðarlegt gamaldags íbúðarhús, enginn íburður. Þér líður bara eins og einum úr sveitinni þegar þú ert þarna. Íbúðarhúsið á Mallandi stendur rétt neðan við Skagaveginn og er fjaran þar sérstakur ævintýraheimur. Á árum áður var þetta eitt mesta rekaviðarsvæðið og enn er töluvert af gömlum reka í fjörunni. Selir og æðarfuglar eru reglulegir gestir þarna.

Sjá allar lýsingar
Sjá allar lýsingar