Mýrarkvísl

Mýrarkvísl
Eftir Matthías Þór Hákonarson
Fyrsta veiðisvæði
0.5 Þjóðvegsbrú/Brúarbreiða {vesturbakki)
Þjóðvegsbrú er frekar nýr veiðistaður. Þar er oft hægt að sjá laxa af brúnni og gerir það veiðina þar einstaklega spennandi. Við mælum þó með að menn fari varlega Í að horfa af brúnni, bæði vegna umferðar og einnig til að styggja ekki fiskinn áður en veitt er á staðnum. Best er að byrja að veiða við girðingu fyrir ofan brú og veiða alveg niður fyrir moldarbarðið neðan við brúna. Fiskurinn liggur yfirleitt úti af grasbarði sem hefur lekið út í ána. Þessi staður getur haldið fiski frá opnun og út september ef nóg vatn er í ánni. Þarna veiðast oft einnig stórir urriðar.
1. Keldupollur (vesturbakki)
Keldupollur er frekar smár veiðistaður en hann hefur þó gefið stöku lax og heldur hann oft urriða í byrjun tímabils. Áin hefur rutt sér leið í gegnum bakka og myndað flottan göngustað svo að það getur borgað sig að prófa Keldupollinn
2. Garðspollur (vesturbakki)
Garðspollur er skemmtileg breið sem leynir á sér. Snemma á tímabilinu getur verið mikill urriði þarna og borgar sig að veiða þennan stað vandlega því að þarna veiðast oft stærstu urriðarnir í ánni. Einnig veiðist lax í Garðspolli og borgar sig að byrja alveg fyrir ofan beygjuna og veiða alla leið niður á breiðuna. Oft getur lax legið alveg með landinu hinum megin því borgar sig, eins og annars staðar í Mýrarkvísl, að kasta alveg upp að bakkanum. Á þessum veiðistað borgar sig að fara með nokkrar flugur yfir. Hann er helst inni þegar mikið vatn er Í ánni en veiðin detturyfirleitt niður í vatnsleysi.
3. Núpabreiða (austurbakki)
Núpabreiða veiðist austanmegin. Hún getur haldið töluverðu magni af urriða alveg efst í staðnum þar sem straumur fellur inn og niður breiðuna. Neðarlega breiðir áin úr sér og rennur á vesturbakkanum þar sem hún safnar vatni svo að það borgar sig að kasta alveg yfir á hinn bakkann.
3,5. Kletthylur neðri (austurbakki)
Kletthylur neðri heldur oft laxi bæði á breiðunni sjálfri en oftar neðst í veiðistaðnum uppi við klettinn. Frábær hits staður.
4. Kletthylur (vesturbakki)
Kletthylur er frábær veiðistaður sem heldur yfirleitt laxi allt tímabilið. Laxinn liggur oft í strengnum milli klettanna en hann getur einnig legið uppi eða neðan við neðri klettinn. Það borgar sig að veiða alla leið niður að og í gegnum Kletthyl neðri.
5. Klapparbreiða (vesturbakki)
Klapparbreiða er frábær veiðistaður sem leynir á sér. Best er að veiða hann að vestan og byrja á að standa á klettinum og kasta langt niður fyrir sig. Laxinn liggur í rennu með fram bakkanum hinum megin en einnig veiðist töluvert af urriða.
6. Írland (austurbakki)
Írland er með fallegri stöðum í ánni. Laxinn liggur oftar en ekki neðan við stóra bergið sem er úti í miðjum veiðistaðnum. Írland er líka mjög góður veiðistaður fyrir urriða.
7. Hvammspollur (vesturbakki)
Hvammspollur heldur yfirleitt fiski allt sumarið, sérstaklega í vatnsleysi og hann stoppar þar iðulega á göngu. Það borgar sig að fara varlega í að kíkja á staðinn ofan af klettinum þar sem laxinn á auðvelt með að sjá mann. Best er annaðhvort að kasta ofan af klettinum efst eða að fara niður fyrir staðinn og kasta andstreymis og strippa hratt.
8. Strengur (vesturbakki)
Strengur heldur oft laxi í vatnsleysi og leynist laxinn þá jafnan alveg efst í staðnum. Einnig er þetta staður sem borgar sig að kasta í á göngutíma.
9. Grófarpollur (vesturbakki)
Grófarpollur er veiðistaður sem geymir yfirleitt mikið magn af laxi, sérstaklega í vatnsleysi. Þó getur verið snúið að ná honum vegna öfugstreymis í staðnum. Laxinn getur legið alveg neðst í staðnum nær vesturbakkanum en einnig fyrir miðju dýpinu. Ef laxinn liggur á dýpinu er gott að kasta þungri smáflugu upp í hornið í klettinum og leyfa flugunni að dauðreka niður fyrir staðinn þar sem undirstraumurinn flytur fluguna venjulega í átt að laxinum.

10. Skuggi (vesturbakki)
Skuggi heldur yfirleitt ekki fiski en þó borgar sig að kasta á hann á göngutíma.
11. Kiðupollur (vesturbakki)
Kiðupollur heldur yfirleitt ekki fiski en þó borgar sig að kasta á hann á göngutíma.
12. Hríspollur (vesturbakki)
Hríspollur heldur yfirleitt ekki fiski en þó borgar sig að kasta á hann á göngutíma.
13. Ósapollur (austurbakki)
Ósapollur er flottur veiðistaður sem getur haldið laxi. Þegar ekið er slóðann upp með ánni er komið að hliði sem er keyrt í gegnum og þar er hægt að komast niður í gilið til að fara yfir ána. Úti í hylnum er stór steinn sem klýrfur ánna og virðist laxinn halda sig í straumskilum þessara tveggja kvísla, með bakkanum austan megin eða í miklu vatni niðri á breiðunni. Við mælum með að menn standist þá freistingu að ganga fram á bergbrúnina og líta ofan í hylinn áður en veitt er þar því að líklegt er að styggja laxinn með þeim hætti.
14. Krummastrengir (austurbakki)
Krummastrengir eru fallegur veiðistaður sem á það til að gefa væna laxa á göngutíma. Þar er lítill strengur sem fellur undir kletti. Best er að komast að staðnum frá Táarhyl (15) með því að vaða yfir ána neðan við staðinn.
15. Táarhylur (vesturbakki)
Táarhylur er einn fallegasti fluguveiðistaðurinn í Mýrarkvísl og frábær hits veiðistaður. Annars vegar er hægt að komast niður að ánni með því að ganga niður smá gil sem er um það bil við miðjan hylinn en einnig er hægt að komast að staðnum ofan frá. Í staðnum er renna þar sem fiskurinn getur haldið sig og er alla jafna lax í honum frá því að hann byrjar að ganga í ána. Laxinn getur haldið sig alveg neðst í staðnum nálægt austurlandinu.
16. Þverfoss (vesturbakki)
Er göngustaður sem ætti þó ekki að eyða miklum tíma í alla jafna.
17. Helluhylur (austurbakki)
Er göngustaður sem ætti þó ekki að eyða miklum tíma í alla jafna.
18. Ytri Kistur (vesturbakki)
Er göngustaður sem ætti þó ekki að eyða miklum tíma í alla jafna.
19. Skáfoss (austurbakki)
Er göngustaður sem ætti þó ekki að eyða miklum tíma í alla jafna.
20. Syðri Kistur (austurbakki)
Er göngustaður sem ætti þó ekki að eyða miklum tíma í alla jafna.
21. Borgarhúsapollur (austur eða vesturbakki)
Er stór veiðistaður sem getur geymt marga laxa sem stoppa þar bæði til að hvíla sig eftir að hafa gengið flúðirnar og smáfossana að neðan ásamt því að vera góður hrygningastaður. Lax getur legið víða uppi í dýpinu en algengast er að hann liggi með austurlandinu út af eða undir grassyllu sem er á milli klettana. Borgarhúsapollur er einn gjöfulasti veiðistaður árinnar. Gott er að vaða yfir ána neðan við staðinn og labba upp með henni eins langt og hægt er og kasta síðan upp í hylinn. Einnig er möguleiki á að komast ofan í hylinn bæði að austan- og vestanverðu fyrir ofan hylinn. Hægt er að veiða hylinn frá einstigi sem er ofan við staðinn á austurbakka eða notast við kaðal til að komast ofan í staðinn miðjan. Þarna leynast líka mjög stórir urriðar. Besta leiðin til að komast að Borgarhúsapolli er að labba niður eftir frá veiðistað 23 vaða upp með ánni frá veiðistað 20 (5 mín.). Athugið að skiltið fyrir Borgarhúsapoll er langt frá veiðistaðnum sjálfum og staðurinn er ekki nálægt veginum.
22. Skarði (vesturbakki)
Besta leiðin til að komast í þennan veiðistað er að leggja við bílastæðið þar sem er skilti fyrir staði 23 og 24 og ganga síðan niður eftir þar til komið er að skarðinu og ganga síðan skarðið niður að staðnum. Flottur fluguveiðistaður sem getur haldið laxi á göngu.
Annað veiðisvæði
23. Ármót ytri (vesturbakki)
Er góður laxastaður sem leynir á sér. Laxinn liggur yfirleitt undir strengnum og getur því verið mikilvægt að veiða djúpt og nota straumana til að bera fluguna niður til laxsins.
24. Ármót syðri (vesturbakki)
Er góður laxastaður sem yfirleitt er með topp fimm stöðum árinnar. Aðgengið að staðnum getur verið yfirþyrmandi en þegar menn komast upp á lagið með staðinn er nánast ekki hægt að fara þaðan laxlaus. Í miklu vatni liggja yfirleitt laxatorfur neðst í hylnum alveg niður á brot og er best að veiða þar af einstiginu þar sem laxarnir sjást. Þegar vatn minnkar færa þeir sig oft ofar í hylinn þar sem hann er dýpri og þá borgar sig að veiða andstreymis með því að ganga niður einstigi neðan við staðinn og vaða útá mitt brotið og kasta langt upp staðinn.
25. Langhylur
Langhylur er erfiður viðureignar en heldur oft laxi.
26. Nafarhylur (vesturbakki)
Er stórkostlegur hits veiðistaður og þar er oft hægt að sjá lax. Besta leiðin til að komast að staðnum er að leggja á planinu við skiltið og ganga upp með veginum þar til komið er að gilinu sem hægt er að ganga niður að ánni. Lax getur haldið sig Í pollinum þar sem áin byrjar að þrengjast eða á breiðunni sem er þar fyrir neðan. Lax getur legið efst í staðnum í djúpum polli efst undir straumnum en oftar við enda straumsins. Einnig liggur oft lax í rennu neðan við djúpa pollinn og alveg niður á brot.
26,5. Trölladyr ómerktur staður (austurbakki)
Trölladyr er lúmskur veiðistaður sem geymir alltaf mikið magn af laxi. Þegar gengið er niður í gilið á leið í Nafarhyl er vaðið yfir ánna og gengið upp með ánni eins langt og hægt er og þaðan er hægt að kasta andstreymis á breiðuna. Einnig er einstigi fyrir ofan staðinn til að veiða staðinn ofan frá. Laxinn getur legið alveg undir klöppinni austanmegin.
27. Voðhylur (austurbakki)
Er stórkostlegur veiðistaður sem borgar sig ekki að veiða einn. Til að komast að Voðhyl er ekið niður túnið hjá skógum þartil er slóðin endar við Mýrarkvísl. Þaðan er síðan gengið niður með ánni í um það bil fjórar mínútur. Hér borgar sig að horfa ætíð niður að á og kíkja upp eftir reglulega til að ganga ekki framhjá honum. Þar sem staðurinn sést ekki vel frá göngustígnum er gott að vita að það sést glitta í stiga þegar horft er upp ána við staðinn. Staðurinn er oftast veiddur af syllu sem er fyrir ofan staðinn og borgar sig að láta ekki mikið á sér bera en einnig er hægt að læðast niður stigann til að veiða Voðhyl en þá þarf að fara varlega. Erfitt getur verið að fá fluguna til að ferðast hratt í svona þröngum veiðistað en það er þó besta leiðin til að setja í lax. Lax getur legið alveg undir klöppinni neðan við sylluna eða framan við stein sem er nær austurbakkanum og stóran stein sem er í miðri ánni. Í Voðhyl er gott að vera með þunga flugu til að ná niður til laxsins.
28. Stokkhylur (vesturbakki)
Er skemmtilegur fluguveiðistaður sem heldur nánast undantekningarlaust laxi. Til að komast niður að honum borgar sig að styðjast við kaðal og þegar komið er niður á fyrstu sylluna þarf að notast við kaðalinn til að komast á litla grassyllu til að geta athafnað sér almennilega. Einnig er hægt að fara niður einstigi að vatnsyfirborðinu og veiða staðinn andstreymis. Laxinn getur legið undir berginu báðum megin og alveg niður á brot. Hér borgar sig að nota þungar flugur til að ná til laxsins. Í Stokkhyl sér maður oft laxinn sem maður er að kasta til og gerir það veiðina virkilega spennandi.

28,5. Stokkhylur efri (austurbakki)
Einnig getur lax legið ofan við rennuna í Stokkhyl en þá borgar sig að veiða staðinn austanmegin.
29. Ytri Stekkur (austurbakki)
Er skemmtilegur veiðistaður sem heldur alla jafna miklu magni af laxi. Besta leiðin til að komast að honum er að ganga upp með ánni ofan við stað 30 og fara þar ofan í gilið og yfir ánna, ganga síðan niður ána og veiða báða stekkina. Laxinn getur haldið sig í straumskilunum norðanmegin og borgar sig að veiða niður allan staðinn.
30. Syðri stekkur (austurbakki)
Syðri stekkur er frábær fluguveiðistaður sem heldur yfirleitt laxi og borgar sig að gefa honum tækifæri á leiðinni niður að Ytri stekk. Laxinn liggur yfirleitt undir strengnum sem rennur með vesturlandinu en getur þó einnig legið í víkum austanmegin, sérstaklega í miklu vatni.
31. Sigurðarflúð (vesturbakki)
Sigurðarflúð er göngustaður sem getur borgað sig að kasta á göngutíma.
32,25. Brekka (vesturbakki)
Brekka er frábær veiðistaður fyrir urriða.
32,5. Brúarbeygja (vesturbakki)
Brúarbeygja er góður veiðistaður og hefur áin grafið sér djúpa rennu í beygjunni og getur lax legið alveg frá neðri brún á hólnum og niður fyrir næstu beygju að neðan.
33. Brúarhylur (vesturbakki)
Er fínn urriðastaður en það rennur mjög lítið vatn í gegnum hann í dag. Brúarhylur var góður laxastaður meðan áin rann með bakkanum.
34. Hólmapollur (Vesturbakki)
Oft kallaður Sigmarsdráttur. Þessi veiðistaður heldur oft miklu magni af laxi en þó getur verið erfitt að ná honum á flugu. Lax heldur sig annaðhvort á speglinum fyrir innan þar sem áin keyrir á bakkann eða undir grasbakkanum. Þá borgar sig að veiða alveg niður að því þar sem fellur úr staðnum. Einnig getur verið gott að kasta þar andstreymis.
35. Túnapollur (austurbakki)
Túnpollur þótti góður veiðistaður hér áður fyrr, rétt eftir að grafið var úr honum og þar veiðist reglulega lax þar, sérstaklega á haustin.
36. Gljúfrapollur (vesturbakki)
Gljúfrapollur er veiðistaður sem gefur lax allt sumarið og getur verið sérstaklega gott að veiða hann að morgni til. Gljúfrapollur hafði skemmst með tímanum en fyrir sumarið 2016 grófum við úr honum og hefur hann gefið góða veiði síðan. Þetta er síðasti hvíldarstaður fyrir laxinn áður en hann gengur upp laxastigann.
Þriðja veiðisvæði
37. Höfðaflúð (vesturbakki)
Höfðaflúð er mjög vatnslítil og er varla hægt að kalla hana veiðistað lengur en það stendur til að reyna að laga hann fyrir sumarið 2018.
38. Gæsahólmi (austurbakki)
Gæsahólmi er lítil flúð og höfum við fengið lax á flugu með því að vaða yfir ána vel fyrir ofan flúðina og kasta lítilli túbu. Í staðnum er lygna við austurbakkann og í miðri ánni koma tveir strengir niður. Laxinn liggur milli strengja eða neðst á lygnunni. Einnig liggur lax oft bæði uppi við hólmann ofan við flúðina þar sem glittir í stórt grjót við bakkann eða uppi með háa bakkanum fyrir ofan hólmann. Það borgar sig að veiða Gæsahólma að austan. Einnig er best að vaða yfir rétt neðan við girðingu og veiða frá horninu á háa bakkanum og niður fyrir flúðina.
39. Stóri krókur (vesturbakki)
Ekki veit ég til að lax hafi veiðst í Stóra krók en þarna getur verið urriði.
40. Stífla (vesturbakki)
Stíflan er fínn urriðastaður sem en þyrfti líklega að laga til svo að hann haldi vatni.
41. Langalygna (vesturbakki)
Langalygna er einn besti veiðistaðurinn í ánni og er í raun tveir veiðistaðir. Annars vegar gengur maður í hjólförunum niður að ánni og byrjar að veiða fyrir ofan beygjuna. Lax heldur sig í strengnum milli steinanna og lygnunnar á hinum bakkanum, alveg þar til áin beygir. Seinni staðurinn er brot aðeins neðar í ánni. Báðir staðirnir er mjög viðkvæmir og hefur reynst best að vera ofan í ánni meðan veitt er en ekki uppi á bakka.
42. Krókhylur (vesturbakki)
Krókhylur er mjög gjöfull laxveiðistaður út allt tímabilið. Þegar bíl er lagt við skiltið er gengið frá ánni og alla leið upp fyrir beygjuna. Þar er flúð áður en áin breiðir úr sér og heldur hún nær alltaf urriða. Síðan vinnur maður sig niður beygjuna og getur lax legið frá því þar sem áin byrjar að beygja en aðaltökustaðurinn er fyrir ofan og neðan grjótið sem brýtur á hinum bakkanum við moldarbakka. Hér borgar sig að kasta alveg yfir á hinn bakkann.
43. Tóftarflúð (vesturbakki)
Er fínn urriðastaður.
44. Seláspollur (vesturbakki)
Er fínn urriðastaður.
45. Víðihólmar (vesturbakki)
Er fínn urriðastaður.
45.5 Ómerktur urriðastaður - Brjósthylur (vesturbakki)
Þegar ekið er niður brekkuna á eftir veiðistað 45 er komið niður á flata. Þar sést á vinstri hönd nibba sem minnir á brjóst og er fínt að aka þar um það bil 50 metra upp fyrir brjóstið og byrja að veiða sig niður fyrir það. Þarna höfum við fengið marga urriða.

%20(1).jpg)
