Norðurá - 10 bestu staðirnir

Norðurá - 10 bestu staðirnir
Eftir Brynjar Þór Hreggviðsson (Binna)
Norðurá er ein af þeim ám sem getur breyst gríðarlega mikið út frá vatnsstöðu. Staðir sem virkuðu daginn á undan geta dottið út á örskotsstundu og nýjir dottið inn eða laxinn færir sig 50 til 100 metra fyrir ofan „tökustaðinn“ nú eða fyrir neðan. Þá reynir vissulega mikið á veiðimanninn að finna út hvar sá silfraði heldur sig. Þarna getur góður leiðsögumaður skipt sköpum og stytt leitina á skilvirkan hátt. Þekking einstaklings á ánum kemur alltaf til góðs og skilur það oftast á milli happs og glapps. Það er þetta, ásamt stórbrotnu umhverfi Norðurár, sem gefur henni þennan sjarma og þokka. Að velja bestu staði Norðurá er vandasamt og fer það allt eftir vatnsstöðu og tímabili hverju sinni. Sjálfsagt eru einhverjir sem lesa þetta ósammála mér um hvað eru bestu staðirnir. Er það veiðistaðurinn sem gefur flesta fiska eða þar sem þeir stóru halda sig? Þá eru veiðistaðir sem virka betur í júní/júlí (göngustaðir) og þá ágúst/september (legustaðir). Mun ég gera mitt besta að gera greinarmun á þessu. Við skulum byrja á neðstu stöðunum og vinna okkur upp ánna. Þetta eru 10 bestu veiðistaðir Norðurár að mínu mati.

Stekkur (34-43)
Á Stekk svæðinu eru nokkrir af helstu veiðistöðum Norðurár. Má þar nefna Kálfhylsbrot sem geymir fisk allt tímabilið, steinn í fjærlandi en áin teygir sig þarna út og þarf þokkalega löng köst. Hann getur verið ákaflega erfiður þegar logn er en þá myndast spegill og auðvelt að styggja hann. Fiskurinn getur legið 5-10 metra fyrir ofan þennan stein sem gárar út og langt niður.
Skeifan - Þarna myndast löng beygja sem erlendir veiðimenn nefna oft Horseshoe vegna lögun árinnar. Þessi staður er frábær í 10 rúmmetrum og undir. Hægt er að veiða hann beggja vegna.
Breiðan - Einn fallegasti veiðistaður Norðurá en áberandi berg er í fjærlandinu og er þetta fyrsti hvíldarstaðurinn eftir flúðir sem myndast í Skeifunni og upp úr Lækjarhyl. Staðurinn gefur jafnt yfir tímabilið en á fyrstu dögunum stoppar hann lítið við og getur reynst erfiður sem vorveiðistaður og Stekkjarfljótið fyrir ofan er þá jafnan betra. Það snýst hinsvegar gjarnan við þegar byrjar að líða á júlí mánuð. Á Breiðunni eru rásir og klappir sem laxinn hvílir sig í. Oft má taka göngufisk alveg á blábrotinu þar sem hann fellur niður í Lækjarhyl.
Hornbreiða - Þetta er staður sem hefur reynst mér frábærlega í göngufisk. Þetta er Göngustaðurinn með stórum greini. Ekki skal eyða tíma í hann ef áin er í 20 rúmmetrar eða meira eða undir 11 rúmmetrum. Í öllu vatnsmagni þar á milli stoppar allur fiskur í smá stund og þarna geta, og hafa ævintýrin gerst.

Stokkhylsbrot (56)
Þessi staður er algjörlega geggjaður. Þegar maður kemur niður stigann frá bílastæðinu blasir við lítil eyja. Í góðu vatni liggur hann frá miðri eyju og niður að miðri á þar sem brýtur á steinum og grynnkar. Þá eru einnig áberandi hvítar skellur í botninum og liggur hann ofan á þeim og við þær. Í litlu vatni er hann við neðstu skelluna sem er áberandi klöpp og sést vel og myndar rólegra vatn. Þessi staður virkar strax frá opnun og út júlí. Hann heldur lítið eftir það en laxinn getur fært sig þangað í góðu vatni þótt liðið sé á tímabilið.
Bryggjur (66)
Bryggjurnar eru þrjár og eru staðsettar fyrir neðan veiðihúsið. Að öllu jöfnu veiðist mest í mið Bryggjunni en þar eru tveir steinar á móts við hvorn annan landmegin beggja vegna. Á milli þeirra er aðal tökustaðurinn. Þegar Bryggjurnar eru veiddar er gengið niður frá veiðihúsi, þar blasa þær við. Gott er að byrja í Efstu Bryggju og þá er vaðið út á grunnar klappir. Þar úti er stór steinn vestan megin og gott er að byrja 10-15 metra fyrir ofan þann stein. Þessar klappir eru þræddar í rólegheitum og þessi fallega rás veidd niður. Við Mið Bryggjuna eru þessir tveir steinar á móts við hvorn annan. Varast skal að vaða nálægt steininum sem er næst manni en þar er hola og þar liggur iðulega lax. Til þess að veiða Neðstu Bryggju skal vaða vel fyrir neðan steininn og kasta í framhaldinu niður í neðstu Bryggjuna. Veiða bara nógu langt niður, það getur skilað sínu.
Laxfoss (69-79)
Ég kýs að tala um Laxfoss í heild þar sem þarna stoppar hver einasti fiskur sem kemur í ánna. Einhverjir fengsælustu veiðistaðir Norðurár eru við Laxfoss, t.a.m Eyrin og Brotið. Brotið rennur vestan megin og Eyrin að austan. Þarna skiptir vatnsstaðan höfuðmáli um hvorum megin hann liggur. Ef við tölum um rúmmetra á sekundu að þá má segja ef vatnsstaðan er 18 m3 eða yfir þá liggur hann meira Brot megin (á Brotinu sjálfu) og þá alveg við landið Eyrar megin og neðst á Eyrinni. Ef áin er í venjulega vatni getur oft reynst erfitt fyrir þá sem eiga Brotið að horfa yfir á hinn bakkann þar sem fiskurinn leggst á Eyrina. Eyrin er gjöfulasti veiðistaður Norðurár en verður erfiðari eftir því sem líður á tímabilið og dettur í rauninni út í ágúst og september. Fyrir ofan Brotið eru Skerin og í góðu vatni liggur hann þar nálægt þessum skerjum og oft við holu sem er rétt fyrir utan neðra Skerið. Þegar áin er 12 m3 í rennsli eða minna stoppar nær allur fiskur á miðlægu svæði rétt fyrir neðan Laxfoss sjálfan. Kallast sá staður Krosshola og þetta er djúp hola og auðveldur staður fyrir Portlandsbragðið eða hitch túbu að skauta þar yfir.
Kýrgrófarhylsbrot (92)
Kýrgrófarhylsbrot er einn af frábærum stöðum sem liggja á milli fossa (Glanna og Laxfoss) og má þar einnig nefna Réttarhylsbrot og Berghylsbrot. Kýrgrófarhylsbrot heldur fiski allt tímabilið má segja frá júní-september. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta brot áður en áin fellur niður í Grjótin sem er frekar hraður kafli árinnar. Við Kýrgrófarhylsbrotið kemst laxinn í hvíld. Þarna getur hann legið víða og fer eftir vatnsstöðu hvorum megin hann liggur. Í miklu vatni getur hann fært sig yfir í austurlandið. Að öllu jöfnu er betra að veiða hann vestan megin. Þá þarf að velja rétt þar sem að Réttarhylsbrotið, sem er tugi metra fyrir ofan, veiðist betur austanmegin. Ég mæli alltaf með að veiða Kýrgrófarhylsbrotið vestan megin og vaða fyrir ofan Réttarhylsbrotið þeim megin einnig og veiða staðinn þaðan.
Skarðshamarfljót (138) og Fitjabakki (139)
Þessir tveir veiðistaðir fyrir miðju árinnar liggja nálægt hvorum öðrum og eru auðlesanlegir staðir. Tökustaðurinn í Fitjabakka er hlaðinn grónu hraungrýti í austurlandinu. Fyrir miðri grýtunni er tökustaðurinn. Fara skal varlega að þessum stað og forðast að vaða út nema rétt til þess að ná rétta kasthorninu á fiskinn. Best þykir mér að kasta 50 gráður og fá fluguna yfir staðinn og strippa hratt inn þegar hægist á vatninu. Á milli Fitjabakka og Skarðshamarfljóts rennur ein af hliðarám Norðurár í hana, Bjarnardalsá. Út frá Bjarnardalsá myndast öfugstreymi og breiða fyrir framan sem rennur fram hjá stórum klett í austurlandinu. Fiskur liggur við þetta öfugstreymi og er frekar erfitt rennsli þar en á breiðunni nær maður góðu rennsli. Reynist oft vel að standa fyrir ofan ármótin og kasta nærri klettinum og ná rennslinu að Bjarnardalsánni. Rétt neðar er steinn út fyrir miðri á og er það aðaltökustaðurinn í Skarðashamarsfljóti. Laxinn liggur allt í kringum þennan stein og jafnvel 30-50 metra fyrir neðan hann í góðu vatni.

Hafþórsstaðahylur (155)
Þessi veiðistaður gefur jafnan frá fyrstu viku júlí mánaðar og út tímabilið. Langur staður sem á sína tökubletti. Við Hafþórsstaðahyl er hlaðinn grjótgarður fyrir neðan Sandhólavað og laxinn liggur alla leið niður þennan grjótgarð í ágúst og september. Sá blettur sem er jafnan bestur er þar sem hátt sandholt rís eftir þennan grjótgarð. Þar er lítill steinn sem brýtur á í austurlandinu og myndar gáru, laxinn liggur við þennan stein og við klöpp sem liggur þar niður. Klöppin er staðsett beint fyrir miðju sandholtinu og sér maður straumhvörfin vel. Í góðu vatni getur fiskur legið langt fyrir neðan sandholtið eða þar sem raflína kemur yfir þar sem áin er breiðust.
Neðri Ferjuhylur (177) og Poki (183)
Fyrir neðan Króksfoss koma frábærir veiðistaðir með stuttu millibili og eru það helstu veiðistaðir Norðurá II. Þarna eru Ferjuhylirnir (efri og neðri), Réttarstrengur, Króksbrúin og fleiri staðir. Ég tek Neðri-Ferjuhyl út fyrir sviga, hann er bæði og gjöfull og dregur að sér stærri fiska. Þarna veiðist laxar strax á fyrstu vikum júní mánaðar og gjarnan stóru hrygnur Norðurár og má oft sjá stóru hænganna koma upp um sig í ágúst/september á þessum slóðum. Þetta er staður þar sem fallegur strengur myndast út frá Efri-Ferjuhyl niður í hraðan streng. Neðarlega í þessum streng fyrir miðju myndast hola við stein og má gjarnan hitta á lax þar. Þessi veiðistaður er veiddur austan megin. Við vesturlandið er stór klettur og út frá þessum hraða streng hægir á honum og tognar áin létt úr sér og myndar fallega breiðu. Neðst við klettinn kemur lítið klettahorn en þar er frábær tökustaður. Þessi veiðistaður virkar allt tímabilið og leggst fiskur þar í ágúst og september. Ef gott vatn er í ánni má veiða hann alveg niður þar sem hann fellur í veiðistaðinn Laxalá.
Síðasti veiðistaðurinn í þessari yfirferð er Poki en ásamt Neðri-Ferjuhyl eru þetta gjöfulustu veiðistaðirnir í Norðurá II. Þessi veiðistaður rennur út frá Króksfossi í ótrúlega fallegum streng. Rétt eins og Neðri-Ferjuhylur er hann veiddur frá austurlandinu en gott er að vaða fyrir neðan Poka á grynningum þar ef vatnsstaða er í lagi og ekki of mikið í henni. Veiðistaðurinn er þröngur efst og myndar þennan gullfallega streng. Laxinn getur legið alveg efst í stútnum þar sem stengurinn myndast, í Poka sjálfum sem er áberandi vik í fjærlandinu og í góðu vatni neðst í honum bæði vestan megin og austan megin.

%20(1).jpg)
